Fræðsluráð
238. fundur
8. maí 2019
kl.
08:00
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
varamaður
Starfsmenn
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
Kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Frá Dalvíkurskóla; Niðurstöður samræmdra prófa
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir helstu niðurstöður samræmdra prófa sem lögð voru fyrir nemendur í 9.bekk.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
2.
Frá Dalvíkurskóla; Skólapúlsinn - niðurstöður
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti helstu niðurstöður Skólapúlsins.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
3.
Frá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar; Kynning á námsleiðinni, -sterkari starfsmaður
Sif Jóhannesdóttir og Helgi Þorbjörn Svavarsson, verkefnastjórar hjá Símey kynntu námsleiðina sterkari starfsmaður. Námið er ætlað starfsmönnum skóla, öðrum en kennurum þar sem annars vegar er lögð áhersla á upplýsingatækni og hins vegar samskipti og sjálfstyrkingu.
Fræðsluráð þakkar fyrir kynninguna og felur sviðsstjóra að kynna málið fyrir framkvæmdastjórn og taka ákvörðun í samráði við stjórnendur skóla.
4.
Frá fræðslusviði; Fjárhagslegt stöðumat - málaflokkur 04
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu -og menningarsviðs lagði fram fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04, janúar til og með apríl 2019.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
5.
Frá fræðslusviði; Gjaldskrár 2019 á málaflokk 04
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu -og menningarsviðs fór yfir endurskoðun á gjaldskrám fyrir málaflokk 04 og lagði fram drög að breytingum.
Fræðsluráð lagði til að gjaldrskrá yrði skoðuð í heild sinni og lögð fyrir á næsta fundi ráðsins til samþykktar.
6.
Frá leik -og grunnskólum; Starfsáætlun fræðslu-og menningarsviðs 2019
Stjórnendur leik-og grunnskóla fóru yfir stöðu helstu verkefna sem og það helsta sem framundan er í starfinu.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferðina á þeim verkefnum sem eru í gangi og því sem framundan er.
7.
Frá Krílakoti; Opnunartími leikskóla
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots lögðu fram tillögu þess efnis að leikskólinn Krílakot muni opna 7:45 frá og með næsta hausti í stað 7:30.
Fræðsluráð leggur til að frá og með næsta hausti verði opnunartími 7:45 á Krílakoti í samræmi við nýtingu og opnunartíma á Kötlukoti.
8.
Frá fræðslusviði; Ráðning skólastjóra Dalvíkurskóla
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs gerði grein fyrir umsóknum um starf skólastjóra við Dalvíkurskóla en umsóknarfrestur rann út þann 26.apríl. Alls voru umsækjendur þrír en þar af dró einn umsókn sína til baka.
Fræðsluráð leggur til að Friðrik Arnarson verði ráðinn í starf skólastjóra Dalvíkurskóla.
9.
Frá Alþingi; Frumvarp til laga um lýðskóla, 798. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dags. 12.apríl 2019 þar sem Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um lýðskóla.
Lagt fram til kynningar.
10.
Frá Þjóðleikhúsinu; Þjóðleikhúsið á leikferð um landið
Þjóðleikhúsið stefnir á leikferð um landið í haust með tvær sýningar. Annarsvegar sýningu fyrir 5 ára leikskólabörn og hinsvegar fyrir unglinga í 10.bekk. Áætlað er að vera í Dalvíkurbyggð 13.sept næstkomandi. Áætlað er að sýningin fyrir yngri börnin verði fyrir hádegi en fyrir þau eldri eftir hádegi.Þjóðleikhúsið óskar eftir sýningarrými/félagsheimili og gistingu fyrir 4-5 í uppábúnum rúmum aðfaranótt 13.sept.
Fræðsluráð hafnar erindinu.
11.
Starfsmannamál á fræðslusviði
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs tilkynnti um uppsögn Jónínu Garðarsdóttir, skólastjóra Árskógarskóla og Fjólu Daggar Gunnarsdóttir, kennsluráðgjafa á fræðslusviði. Uppsagnir þeirra beggja taka gildi frá og með 31.júlí 2019.
Fræðsluráð leggur til að störf skólastjóra Árskógarskóla og sérfræðings á fræðslusviði verði auglýst sem fyrst, samkvæmt umræðum og þarfagreiningu sem lögð var fram á fundinum.