Fræðsluráð
237. fundur
10. apríl 2019
kl.
08:00
-
10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Felix Rafn Felixson
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
Kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Frá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar; Ársfundur Símey 2019
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðskynnti fundarboð frá Símey um ársfund sem hann mun sitja þann 10. apríl næstkomandi.
Fræðsluráð byrjaði fundinn á því að bjóða Gísla Bjarnason velkominn til starfa.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Frá Dalvíkurskóla; Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti viðmiðunarreglur skólans varðandi skólasókn og viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn sem taka munu gildi næsta haust.
Fræðsluráð þakkar fyrir góða kynningu og fagnar því að viðmið vegna fjarvista, veikinda og leyfa séu tilbúin.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
3.
Frá Minjastofnun Íslands; Menningarminjakeppni Evrópu 2019
Kynning á Menningarminjakeppni Evrópu en markmið keppninnar er að vekja athygli barna og unglinga á menningarminjum hérlendis með því að vinna fjölbreytt verkefni sem snúa að minjum í umhverfi hvers og eins. Minjastofnun Íslands hvetur skóla til þátttöku í verkefninu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Frá Dalvíkurskóla; Fundargerðir fagráðs
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir fundagerðir fagráðs frá 18.mars og 8.apríl.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
5.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Úttekt á læsisstefnu hjá sveitarfélögum
Skýrsla um úttekt á læsisstefnu sveitarfélaga kynnt. Úttektin sýnir meðal annars að 93% grunnskólabarna á íslandi og 87% leikskólabarna eru í skólum sem sett hafa sér læsisstefnu. Úttektin sýnir jafnframt einungis rúmlega þriðjungur allra sveitarfélaga hefur sett sér formlega læsisstefnu. Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar samþykkti árið 2017 að læsisstefna Eyjafjarðar Læsi er lykillinn, yrði stefna sveitarfélagsins í læsi.
Lagt fram til kynningar.
https://lykillinn.akmennt.is/
https://lykillinn.akmennt.is/
6.
Frá leik-og grunnskólum: Skóladagatal 2019-2020
Stjórnendur leik-og grunnskóla lögðu fram skóladagatöl fyrir skólaárið 2019 - 2020.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Krílakots með fyrirvara um breytingar samkvæmt umræðum á fundi.
7.
Frá fræðslusviði: Fjárhagslegt stöðumat-málaflokkur 04
Gísli Bjarnason, sviðstjóri fræðslu-og menningarsviðs lagði fram fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04, janúar til og með mars 2019.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
8.
Frá leik-og grunnskólum; Starfsáætlun fræðslu-og menningarsviðs 2019
Stjórnendur leik-og grunnskóla fóru yfir stöðu helstu verkefna sem og það helsta sem framundan er í starfinu.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferðina á þeim verkefnum sem eru í gangi og því sem framundan er.
9.
Frá Krílakoti; Foreldrakönnun
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots fór yfir helstu niðurstöður úr foreldrakönnun sem lögð var fyrir í febrúar.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
10.
Frá Krílakoti; Orðaleikur - þróunarverkefni
Guðrún Halldóra, leikskólastjóri Krílakots sagði frá styrkveitingu úr Sprotasjóði fyrir verkefnið orðaleik. Leikskólinn tekur þátt í verkefninu ásamt Miðstöð skólaþróunar og leikskólanum Iðavöllum. Markmið verkefnisins er að efla íslenskukennslu barna af erlendum uppruna í leikskólum og þróa aðgengilegt námsefni í íslensku fyrir leikskólabörn af erlendum uppruna.
Lagt fram til kynningar.