Fræðsluráð
235. fundur
13. mars 2019
kl.
08:00
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Felix Rafn Felixson
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
Kennsluráðgjafi
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots, Arna Arngrímsdóttir, fulltrúi starfsmanna Krílakots og Telma Björg Þórarinsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna á Krílakoti sátu fundinn undir liðum 1-5.
Jónína Garðarsdóttir, skólastjóri Árskógarskóla og Bjarni Jóhann Valdimarsson, fulltrúi foreldra grunnskólabarna í Árskógarskóla sátu fundinn undir liðum 1-6.
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna Dalvíkurskóla sátu fundinn undir liðum 1-8.
Dagskrá
2.
Frá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar; Kynning á starfssemi Símey
Sif Jóhannesdóttir, nýráðin verkefnastjóri hjá Símey kynnti starfið sitt og starfsemina í námsveri SÍMEY hér á Dalvík.
Fræðsluráð þakkar Sif fyrir góða kynningu á starfsemi Símey og býður hana velkomna til starfa.
3.
Frá leik-og grunnskólum; Ósk um breytingu á upplýsingakerfi skólanna
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir ósk frá skólunum um breytingar á upplýsingakerfum þeirra. Ósk um breytingar felst í því að fara úr því að nota kerfið Námfús og yfir í kerfin Mentor og Karellen.
Fræðsluráð samþykkir að stefnt verði að því að skipt verði um upplýsingakerfi í skólunum til að auka skilvirkni í skólastarfi og vísar málinu áfram til umræðu í UT-teymi Dalvíkurbyggðar.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun Fræðslu- og menningarsviðs 2019
Gunnþór E. Gunnþórsson, formaður fræðsluráðs ræddi tillögu um að stjórnendur skóla færu yfir stöðu verkefna m.a. út frá starfsáætlun fræðslu-og menningarsviðs.
Fræðsluráð leggur til að á hverjum fundi kynni stjórnendur skólanna þau verkefni sem eru í gangi og það helsta sem er framundan.
5.
Skóladagatal 2019-2020
Skólastjórnendur lögðu fram drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2019-2020.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Guðrún Halldóra, Arna og Telma fóru af fundi kl.08:50
6.
Niðurstöður foreldrakönnunar í Árskógarskóla og Dalvíkurskóla
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Jónína Garðarsdóttir, skólastjóri Árskógarskóla fóru yfir helstu niðurstöður úr foreldrakönnun sem lögð var fyrir í febrúar.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Jónína og Bjarni fóru af fundi kl.09:15
7.
Frá Dalvíkurskóla; Fundargerðir fagráðs
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir fundargerð fagráðs frá 4.mars 2019.
Lagt framt til kynningar og umræðu.
8.
Frá Dalvíkurskóla; Umsókn í endurmenntunarsjóð grunnskóla 2019
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla sagði frá umsókn Dalvíkurskóla í Endurmenntunarsjóð kennara. Umsóknin felur í sér námskeið fyrir kennara þar sem farið verður í leiðir til þess að efla og styrkja sjálfsmynd og sjálfsstraust barna og unglinga. Að auki er styrkurinn hugsaður fyrir fræðslu til foreldra sem og eftirfylgni við kennara.
Fræðsluráð fagnar þessari umsókn.
Gísli og Guðríður fóru af fundi kl. 09:20
9.
Trúnaðarmál
TrúnaðarmálBókað í trúnaðarmálabók.