Fara í efni

Fræðsluráð

232. fundur
12. desember 2018 kl. 08:00 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Felix Rafn Felixson formaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir varamaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir Kennsluráðgjafi
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, formaður boðaði forföll og í hans stað mætti Þórunn Andrésdóttir. Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots, Arna Arngrímsdóttir, fulltrúi starfsmanna Krílakots og Telma Björg Þórarinsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna á Krílakoti sátu fundinn undir liðum 2-5. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna Dalvíkurskóla og Jónína Guðrún Jónsdóttir, fulltrúi foreldra grunnskólabarna í Dalvíkurskóla sátu fundinn undir liðum 6-7. Jónína Garðarsdóttir, skólastjóri Árskógarskóla og Bjarni Jóhann Valdimarsson, fulltrúi foreldra grunnskólabarna í Árskógarskóla sátu fundinn undir liðum 6-8.
Dagskrá
1.
Fjárhagslegt stöðumat - málaflokkur 04
Málsnúmer 201811048
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, lagði fram fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04 - janúar til og með nóvember 2018. Einnig lagði hann fram hugmyndir um að fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04- verði framvegis kynnt ársfjórðungslega.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Fræðsluráð samþykkir að fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04 verði lagt fram ársfjórðungslega hér eftir.
2.
Umbóta og aðgerðaáætlun - Krílakot 2018
Málsnúmer 201809030
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir og Arna Arngrímsdóttir mættu til fundar kl.08:20. Niðurstöður úr könnun Vinnuverndar sem lögð var fyrir starfsfólk í nóvember 2018 fylgdu fundarboði.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Fræðsluráð óskar eftir að málið verði tekið aftur upp þegar að greiningu á niðurstöðum er lokið.
6.
Fundargerðir fagráðs
Málsnúmer 201811046
Gísli Bjarnason, Guðríður Sveinsdóttir og Jónína Garðarsdóttir mættu til fundar kl. 9:00, Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir fundargerðir fagráðs frá 12/11 og 26/11.
Lagt fram til kynningar.
7.
Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn
Málsnúmer 201810025
Farið yfir drög að viðbrögðum við ófullnægjandi skólasókn sem fylgdu fundarboði ásamt samantekt frá kennurum varðandi ábendingar og athugasemdir.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Gísli Bjarnason, Guðríður Sveinsdóttir fóru af fundi kl. 9:20