Fara í efni

Fræðsluráð

231. fundur
14. nóvember 2018 kl. 08:00 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Hlynur Sigursveinsson/Fjóla Dögg Gunnarsdóttir Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir fagráðs
Málsnúmer 201811046
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla fór yfir fundargerðir fagráðs frá 10/9, 8/10 og 29/10.
Lagt fram til kynningar.
2.
Niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk 2018
Málsnúmer 201811047
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat - málaflokkur 04
Málsnúmer 201811048
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, lagði fram fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04 - janúar til og með október 2018.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
4.
Stöðumat vegna umbóta og aðgerðaáætlunar á Krílakoti
Málsnúmer 201811049
Á 229. fundi fræðsluráðs þann 12. september 2018 var eftirfarandi bókað: "Hlynur Sigursveinsson og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir lögðu fram og kynntu umbóta og aðgerðaáætlun fyrir Krílakot. Áætlunin var unnin út frá skýrslu Vinnuverndar sem lögð var fyrir Fræðsluráð á 225. fundi þess 11.apríl 2018.Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð óskar eftir því að stöðuskýrsla verði lögð fyrir ráðið í nóvember 2018".
Lagt fram til kynningar og umræðu.
5.
Starfsmannamál Krílakot
Málsnúmer 201811050
Guðrún Halldóra, leikskólastjóri í Krílakoti og Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fóru yfir stöðu starfsmannamála í Krílakoti.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
6.
Trappa ehf. - Námskeið fyrir skólanefndir 2018
Málsnúmer 201810052
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður fræðsluráðs vék af fundi vegna vanhæfis klukkan 9:27.Hlynur Sigsveinsson, sviðsstjóri, kynnti námskeið á vegum Tröppu ehf. fyrir skólanefndir 2018.
Lagt fram til kynningar.
7.
Sambandið - Námskeið fyrir skólanefndir 2018
Málsnúmer 201811035
Hlynur Sigusveinsson, sviðsstjóri, kynnti námskeið á vegum Sambandins fyrir skólanefndir 2018.
Lagt fram til kynningar.
8.
Heimsókn fræðslusviðs í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201811051
Fræðsluráð fór í kynnisferð í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð skoðaði húsakynni, aðstöðu og starfsemi í Dalvíkurskóla og þakkar fyrir góðar móttökur.