Fræðsluráð
230. fundur
10. október 2018
kl.
08:00
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Felix Rafn Felixson
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Steinunn Jóhannsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
starfsmaður
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Fjóla Dögg Gunnarsdóttir
kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Tilmæli Persónuverndar vegna notkunar samfélagsmiðla í skólastarfi
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri, kynnti tilmæli Persónuverndar vegna notkunar samfélagsmiðla í skólastarfi. Tilmælin fylgdu fundarboði.
Lagt fram til kynningar.
2.
Yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri, fór yfir verkefni er varða leik- og grunnskóla sem sveitarfélögum er skylt að sinna samkvæmt lögum.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat- málaflokkur 04
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, lagði fram fjárhagslegt stöðumat á málaflokk 04 - janúar til og með september 2018.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
4.
Úttektir á heimasíðum fræðslu- og menningarsviðs 2018
Úttekt sem gerð var í júlí 2018 á heimasíðum Árskógarskóla, Dalvíkurskóla, Krílakots og fræðslu- og menningarsviðs kynnt.
Lagt fram til kynningar.
5.
Gæðastarf í grunnskólum
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður fræðsluráðs og Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, kynntu nýja skýrslu Menntamálastofnunar sem ber heitið Gæðastarf í grunnskólum-viðmið og framkvæmd ytra mats grunnskóla.
Lagt fram til kynningar.
6.
Viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs, kynnti gögn sem hægt er að nýta sem viðmið í vinnu við samræmd viðbrögð grunnskóla við ófullnægjandi skólasókn.
Fræðsluráð leggur til að mótaðar verði sameiginlegar reglur í báðum grunnskólunum og óskar eftir því að sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs leggi drög að þeim fyrir næsta fund ráðsins.
7.
Þátttaka Dalvíkurskóla í þróun prófa og skimana Lesferils 2018-2020
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, kynnti þátttöku Dalvíkurskóla í stöðlun á þeim hluta Lesferils sem snýr að réttritun í 3.-10.bekk, mati á lestraráhugahvöt og sumaráhrifum á lesfimi í 1.-10.bekk. Verkefnið stendur yfir næstu tvö ár. Alls taka 39 skólar þátt í þessari forvinnu.
Lagt fram til kynningar.
8.
Úthlutun úr námsgagnasjóði 2018
Hlynur Sigsveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, kynnti úthlutun úr Námsgagnasjóði fyrir skólaárið 2018-2019. Árskógarskóli fékk 32.659 og Dalvíkurskóli 278.640 en úthlutun sjóðsins tekur mið af fjölda skráðra nemenda í hverjum grunnskóla. Ráðstöfun fjárins einskorðast við kaup á námsgögnum frá lögaðilum öðrum en Menntamálastofnun.
Lagt fram til kynningar.
9.
2018_Erasmus , Robotication - styrkveiting til Dalvíkurskóla
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, kynnti verkefnið Robotication sem Erasmus hefur samþykkt að styrkja.Verkefnastjóri er Guðný Sigríður Ólafsdóttir og samstarfslönd eru Pólland, Ítalía, Finnland og Eistland.
Lagt fram til kynningar.
10.
Þróunarverkefni Menntamálastofnunar-Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, sagði frá því að umsókn um þátttöku í þróunarverkefni Menntamálastofnunar-snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi, sem fræðsluráð samþykkti á fundi sínum 22.ágúst 2018, var hafnað.
Lagt fram til kynningar.
11.
Matarkostnaður í grunnskólum
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs, lagði fram minnisblað um verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla í nokkrum sveitarfélögum.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að verð á máltíðum til starfsmanna grunnskóla verði óbreytt frá því sem nú er.
12.
Yfirferð og endurskoðun á erindisbréfum fagráða
Á 229. fundi fræðsluráðs var erindisbréf fræðsluráðs yfirfarið og tillögur að breytingum ræddar. Með fundarboði fylgdu drög að nýju erindisbréfi.
Nýtt erindisbréf fyrir fræðsluráð Dalvíkurbyggðar samþykkt með fimm atkvæðum.
13.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Fræðsluráð fór í kynnisferð í leikskólann Krílakot og skoðaði húsakynni, aðstöðu og starfsemi þar.
Fræðsluráð þakkar Krílakoti fyrir góðar móttökur.
14.
Starfslok Dóróþeu Reimarsdóttur kennsluráðgjafa
Dóróþea Reimarsdóttir kennsluráðgjafi sat í dag sinn síðasta fund í fræðsluráði en hún lætur formlega af störfum 31.október þó síðasti starfsdagur sé í dag 10.10.2018.
Fræðsluráð þakkar Dóróþeu fyrir vel unnin störf og framlag hennar til menntamála en hún hefur starfað við skólamál í Dalvíkurbyggð frá árinu 1981.