Fara í efni

Fræðsluráð

229. fundur
12. september 2018 kl. 08:00 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir/Fjóla Dögg Gunnarsdóttir Starfsmenn Fræðslu og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun Fræðslu- og menningarsviðs 2019
Málsnúmer 201809029
Fundarboði fylgdu drög að starfsáætlun Skólaskrifstofu, Dalvíkurskóla, Frístundar, Árskógarskóla og Krílakots.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Drögin verða uppfærð í samræmi við umræður á fundinum og skilað 17. september til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
2.
Ráðning grunnskólakennara við Árskógarskóla
Málsnúmer 201809034
Á 875. fundi Byggðaráðs Dalvíkubyggðar var tekin fyrir beiðni um ráðningu umsjónarkennara í 100% starf við Árskógarskóla. Byggðaráð samþykkti beiðnina og heimilaði Jónínu Garðarsdóttur, skólastjóra Árskógarskóla að auglýsa starfið.
Lagt fram til kynningar.

3.
Skólanámskrár/starfsáætlanir Dalvíkurskóla og Krílakots
Málsnúmer 201806067
Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla lagði fram og kynnti skólanámskrá og starfsáætlun Dalvíkuskóla fyrir skólaárið 2018-2019. Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir skólastjóri Krílakots lagði fram og kynnti skólanámskrá og starfsáætlun Krílakots fyrir skólaárið 2018-2019. Námskrárnar og starfsáætlanirnar fylgdu fundarboði.
Fræðsluráð samþykkir skólanámskrá/starfsáætlun Dalvíkurskóla með fimm atkvæðum og skólanámskrá/starfsáætlun Krílakots með fimm atkvæðum með þeim fyrirvara að ábendingum sem komu fram á fundinum verði fylgt eftir. Ákveðið að framvegis verði skólanámskrár/starfsáætlanir lagðar fyrir á júnífundi fræðsluráðs.
5.
Umbóta og aðgerðaáætlun - Krílakot 2018
Málsnúmer 201809030
Hlynur Sigursveinsson og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir lögðu fram og kynntu umbóta og aðgerðaáætlun fyrir Krílakot. Áætlunin var unnin út frá skýrslu Vinnuverndar sem lögð var fyrir Fræðsluráð á 225. fundi þess 11.apríl 2018.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð óskar eftir því að stöðuskýrsla verði lögð fyrir ráðið í nóvember 2018.
6.
Skólamatur - Breyting á kostnaðarskiptingu
Málsnúmer 201809031
Í málefna- og samstarfssamningi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2018-2022 kemur fram að í ljósi góðrar rekstrarafkomu sveitarfélagsins undanfarið ætlar sveitarfélagið að hækka mótframlag sitt til skólamáltíða grunnskólastigs í 50% frá næstu áramótum. Málið verður síðan endurskoðað við gerð fjárhagsáætlunar hvers árs.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að frá og með 1.janúar 2019 verði kostnaðarþátttaka sveitarfélagsins í skólamat á grunnskólastigi 50% í stað 40% eins og nú er.
7.
Gjaldskrár 2019 á málaflokk 04
Málsnúmer 201809032
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri lagði fram gjaldskrár Dalvíkurskóla og leikskóla í Dalvíkurbyggð fyrir árið 2019.
Fræðsluráð samþykkir gjaldskrár fyrir málaflokk 04 með fimm atkvæðum. Tekið verður mið af gjaldskránum í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir fjárhagsárið 2019.
8.
Fjármálaskýrsla á málaflokk 04
Málsnúmer 201809033
Hlynur Sigursveinsson kynnti fjármálastöðu málaflokks 04 eins og hún var 31.ágúst 2018.
Lagt fram til kynningar.
9.
Skólaakstur úr dreifbýli 2018/2019
Málsnúmer 201809035
Samkvæmt fyrirliggjandi samningi um skólaakstur úr dreifbýli 2017 - 2020 skal einingarverð á hvern ekinn kílómetra endurskoðað í upphafi skólaárs m.t.t. hækkunar á vísitölu neysluverðs. Fyrir liggur að einingarverð hækkar nú um 2,62% og að vegalengdir lengjast samtals um 7 kílómetra í Svarfaðardal og Skíðadal. Þetta leiðir af sér aukin kostnað við skólaakstur sem nemur 700 þúsundum á þessu fjárhagsári sem reynt verður að mæta innan ramma núgildandi fjárhagsáætlunar.
Lagt fram til kynningar.

10.
Erindisbréf Fræðsluráðs
Málsnúmer 201809036
Erindisbréf fræðsluráðs lagt fram til yfirlestrar og endurskoðunar.
Erindisbréf fræðsluráðs yfirfarið og tillögur að breytingum ræddar. Fræðsluráð felur sviðsstjóra og kennsluráðgjafa að gera breytingar á grein þrjú um skipan fræðsluráðs. Drög að nýju erindisbréfi verði lögð fyrir fræðsluráð á næsta fundi þess.