Fara í efni

Fræðsluráð

228. fundur
22. ágúst 2018 kl. 08:00 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á Fræðslu- og menningarsviði
Dagskrá
1.
Skólanámskrár/starfsáætlanir leik- og grunnskóla 2018-2019
Málsnúmer 201806067
Jónína Garðarsdóttir, nýr skólastjóri Árskógarskóla, kynnti Skólanámskrá/starfsáætlun Árskógarskóla 2018-2019. Áætlunin fylgdi fundarboði.
Fræðsluráð býður Jónínu velkomna til starfa og þakkar henni fyrir góða kynningu. Skólanámskrá/starfsáætlun Árskógarskóla samþykkt með 4 atkvæðum.
2.
Áætlanir um innra mat skóla 2018-2019
Málsnúmer 201806041
Jónína Garðarsdóttir kynnti áætlun Árskógarskóla um innra mat skólaárið 2018-2019 og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots, kynnti áætlun Krílakots um innra mat skólaárið 2018-2019. Áætlun Dalvíkurskóla var samþykkt á síðasta fundi fræðsluráðs.
Fræðsluráð samþykkir áætlanirnar með 5 atkvæðum.
3.
Þróunarverkefni Menntamálastofnun-Snemmtæk íhlutun með áherslu á málþroska og læsi
Málsnúmer 201808056
Lagt var fram bréf frá Menntamálastofnun þar sem kynnt er fyrirhugað þróunarverkefni skólaárið 2018-2019 um snemmtæka íhlutun með áherslu á málþroska og læsi. Eitt sveitarfélag mun verða fyrir valinu sem samstarfsaðili stofnunarinnar og geta sveitarfélög sótt um að hreppa hnossið. Öll sveitarfélög munu njóta góðs af þessu þróunarstarfi þegar fram í sækir.
Árskógarskóli/Kötlukot hefur lýst áhuga sínum á að taka þátt í verkefninu en Krílakot sér sér ekki fært að taka þátt. Fræðsluráð samþykkir með 5 atkvæðum að Dalvíkurbyggð sæki um að Árskógarskóli/Kötlukot verði þátttakandi í verkefninu og felur starfsmönnum fræðslusviðs og skólastjóra Árskógarskóla að sækja um fyrir 1. september.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2019-Tímarammi
Málsnúmer 201806132
Formaður fræðsluráðs, Gunnþór E. Gunnþórsson, kynnti tímaramma fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019.
Lagt fram til kynningar. Skólastjórar Dalvíkurskóla og Árskógarskóla óska eftir að dagsetning skila á þarfagreiningu launa til launafulltrúa verði endurskoðuð og henni seinkað. Fræðsluráð samþykkir með 5 atkvæðum að leggja til að þetta verði tekið til skoðunar við gerð næsta tímaramma.
5.
Áhrif nýrra persónuverndarlaga á skólastarf
Málsnúmer 201808054
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, kynnti helstu breytingar sem ný persónuverndarlög hafa á starf skóla.
Fræðsluráð þakkar Gísla fyrir greinargóðar upplýsingar.
6.
Uppbyggingarstefnan skólaárið 2018-2019
Málsnúmer 201806064
Valdís Guðbrandsdóttir, iðjuþjálfi og verkefnastjóri Uppbyggingarstefnunnar í Dalvíkurskóla, kynnti áætlaða vinnu hennar á næsta skólaári með skólunum í Dalvíkurbyggð og öðrum þeim stofnunum sem veita börnum og unglingum þjónustu.
Fræðsluráð þakkar Valdísi fyrir kynninguna. Fræðsluráð leggur til að verkefnastjóri Uppbygginarstefnunnar í Dalvíkurskóla verði jafnframt verkefnastjóri Uppbyggingarstefnunnar í Dalvíkurbyggð.
7.
Ráðning kennsluráðgjafa/sérfræðings á fræðslusviði
Málsnúmer 201807002
Í umboði sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs kynnti kennsluráðgjafi á fræðslusviði, Dóróþea Reimarsdóttir, ráðningu eftirmanns síns. Fjóla Dögg Gunnarsdóttir, Hólavegi 5, Dalvík hefur verið ráðin kennsluráðgjafi á fræðslusviði. Stefnt er að því að hún hefji störf sem fyrst.
Fræðsluráð býður Fjólu Dögg velkomna til samstarfs.
8.
Læsisstefna Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201807006
Dóróþea Reimarsdóttir, kennsluráðgjafi og Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, kynntu nýja læsisstefnu Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með stefnuna og hvetur foreldra til að kynna sér stefnuna sem birt er á heimasíðu Dalvíkurskóla á slóðinni https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Stefnur/laesisstefna-dalvikurskola.pdf
9.
Gjöf frá Sæplasti
Málsnúmer 201808055
Sæplast Iceland ehf ætlar að færa öllum verðandi nemendum 1. bekkjar Dalvíkurskóla og Árskógarskóla skólatösku að gjöf ásamt pennaveski og reiknivél. Afhending fer fram í Sæplasti klukkan 13:00 í dag.Fram kemur í bréfi frá Sæplast Iceland ehf að með þessu framlagi vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til samfélagsins og einnig stuðla að því að allir nemendur mæti jafnir til leiks hvað skólabúnað varðar.
Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar þakkar Sæplasti Iceland ehf kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.