Fræðsluráð
225. fundur
11. apríl 2018
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórunn Andrésdóttir
varaformaður
Auður Helgadóttir
Aðalmaður
Felix Rafn Felixson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
aðalmaður
Arna Gerður Hafsteinsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir
Starfsmaður Fræðslu- og menningarsviðs
Steinunn Jóhannsdóttir, formaður, boðaði forföll og Arna Gerður Hafsteinsdóttir situr fundinn í hennar stað. Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri Krílakots og Þuríður Sigurðardóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóla sátu undir liðum 1-2. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskóla, sátu fundinn undir liðum 2-3. Gunnþór E. Gunnþórsson sat fundinn undir lið 4. Freyr Antonsson, fulltrúi foreldra leikskólabarna, mætti ekki og enginn kom í hans stað.
Dagskrá
1.
Krílakot - skýrsla Vinnuverndar mars 2018
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri, lagði fram skýrslu frá Vinnuvernd um niðurstöður greiningarvinnu á Krílakoti. Skýrslan fylgdi fundarboði.
Skýrslan rædd og ákveðið að aðgerðaáætlun verði unnin í framhaldinu. Stefnt skal að því að hún verði lögð fyrir fræðsluráð á næsta fundi þess.
2.
Skóladagatöl 2018 - 2019
Skóladagatöl Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Krílakots lögð fram til endanlegrar afgreiðslu.
Gísli og Guðríður komu til fundar klukkan 9:00.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Krílakots með 5 atkvæðum.
Guðrún Halldóra og Þuríður fóru af fundi 9:15.
3.
Námsárangur
Fundargerð 50. fundar vinnuhóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla fylgdi fundarboði.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Stefnt er að því að á næsta fundi skili vinnuhópurinn lokaskýrslu til ráðsins.
Gísli og Guðríður fóru af fundi kl. 9:27.
4.
Heimsókn fræðsluráðs í Árskógarskóla í apríl 2018
Fræðsluráð fór í kynnisferð í Árskógarskóla.
Fræðsluráð skoðaði húsakynni, aðstöðu og starfsemi í Árskógarskóla og þakkar fyrir móttökurnar.