Fara í efni

Fræðsluráð

221. fundur
8. nóvember 2017 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Þórunn Andrésdóttir varaformaður
Auður Helgadóttir aðalmaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður á fræðslusviði
Dagskrá
1.
Fjárhagslegt stöðumat - 04
Málsnúmer 201709049
Sviðsstjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu fræðslusviðs eftir fyrstu níu mánuði ársins 2017.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
2.
Umsögn Árskógarskóla
Málsnúmer 201711008
Sviðsstjóri fór yfir umsögn sem hann vann f.h. Árskógarskóla vegna beiðni um stækkun lóðar við Árskóg 1 og fyrirhugaðrar byggingar hesthúss.
Lagt fram til kynningar.
3.
Námsárangur
Málsnúmer 201503209
Fundargerðir 41. og 42. fundar starfshóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla fylgdu fundarboði.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
4.
Heimsókn fræðsluráðs í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201711007
Í lok fundar fóru fundarmenn í kynningarheimsókn í Dalvíkurskóla.