Fara í efni

Fræðsluráð

219. fundur
13. september 2017 kl. 08:15 - 11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Þórunn Andrésdóttir varaformaður
Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Auður Helgadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir Starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skólanámskrár og starfsáætlanir skólaárið 2017-2018
Málsnúmer 201706109
Skólastjórar Krílakots, Dalvíkurskóla og Árskógarskóla lögðu fram og kynntu uppfærðar skólnámskrár og starfsáætlanir fyrir skólaárið 2017 - 2018.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi námskrár- og starfsáætlanir en fram kom ábending um að hnykkja betur á fjármálalæsi í skólanámskrá Dalvíkurskóla. Frekari vinna mun fara fram á Krílakoti í vetur við að endurskoða skólanámskrá og starfsáætlun en námskráin eins og hún er núna mun gilda þetta skólaár.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2018
Málsnúmer 201709045
Sviðsstjóri og skólastjórar Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Krílakots, kynntu þann hluta starfsáætlunar fræðslu- og menningarsviðs sem heyrir undir fræðsluráð. Sviðsstjóri kynnti drög að fjárhagsramma fyrir málaflokk 04 fyrir árið 2018.
Stjórnendur Árskógarskóla, Dalvíkurskóla og Krílakots gerðu grein fyrir starfsáætlunum og framkvæmdaáætlun sinna skóla. Umræður urðu um lóð Dalvíkurskóla, hönnun hennar og mikilvægi þess að frágangur lóðar skólans verði forgangsmál. Fjárhagsramminn fyrir málaflokk 04 lagður fram til kynningar.

3.
Fjárhagslegt stöðumat - 04
Málsnúmer 201709049
Sviðsstjóri gerði grein fyrir fjárhagsstöðu fræðslusviðs eftir fyrstu sjö mánuði ársins 2017.
Lagt fram til kynningar.
4.
2018 Gjaldskrá - Fræðslusvið
Málsnúmer 201709043
Sviðsstjóri lagði fram tillögu að gjaldskrám fræðslusviðs ársins 2018. Tillagan felur í sér 1,003% hækkun á gjaldskrám ársins 2017.
Fræðsluráð samþykkir, með fimm atkvæðum, gjaldskrána fyrir árið 2018 þegar félagsheimilið Árskógur hefur verið tekið út úr gjaldskránni og skerpt hefur verið á ákvæði um afturvirka endurgreiðslu leikskólagjalda til foreldra í námi.
5.
Endurgjaldslaus námsgögn fyrir grunnskólanemendur
Málsnúmer 201707024
Sviðsstjóri kynnti afgreiðslu byggðaráðs á erindi sem skólastjóri Dalvíkurskóla sendi byggðaráði 17. júlí 2017 þess efnis að sveitarfélagið greiði ritföng, stílabækur og þess háttar fyrir grunnskólanemendur í sveitarfélaginu. Áætlaður kostnaður á hvern nemanda er 4.500 kr. á skólaárinu. Afgreiðsla byggðaráðs hljóðaði svo:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi til reynslu skólaárið 2017-2018 fyrir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun Dalvíkurskóla og Árskógarskóla á deildir 04210 og 04240 sem þessu nemur. Mætt með lækkun á handbæru fé".
Fræðsluráð fagnar samþykktinni og þakkar Gísla Bjarnasyni fyrir frumkvæði hans í málinu.
6.
Ráðning sálfræðings í hlutastarf
Málsnúmer 201709026
Sviðsstjóri kynnti afgreiðslu byggðaráðs frá fundi þess þann 7. september 2017 þar sem sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs lagði fram erindi um að ráðinn yrði sálfræðingur í 27,5% stöðu við fræðslu- og menningarsvið Dalvíkurbyggðar og félagsmálasvið. Erindið var samþykkt.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Fræðsluráð fagnar því að ráðinn verði sálfræðingur að skólunum og leggur til að um aðgengi að þjónustu hans gildi sömu reglur og verið hefur um sálfræðiaðstoð við nemendur, þ.e. að beiðnir um þjónustu fari í gegnum Nemendaverndarráð skólanna.
7.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201709050
Trúnaðarmál bókað í trúnaðarmálabók.
8.
Umsókn um styrk fyrir Sjávarútvegsskólann 2017
Málsnúmer 201704088
Á fundi byggðaráðs þann 4. maí var tekin fyrir umsókn frá Háskólanum á Akureyri um styrk fyrir Sjávarútvegsskólann 2017. Byggðaráð samþykkti að vísa erindinu til umsagnar í fræðsluráði.
Fræðsluráð hefur vilja til að bregðast jákvætt við erindinu og vísar málinu til byggðaráðs til endanlegrar afgreiðslu.
9.
Sæplast - Námsgögn 1. bekkjar nemenda
Málsnúmer 201709042
Undanfarin ár hefur Sæplast Iceland ehf. gefið 1. bekkingum í Dalvíkurbyggð veglegar skólatöskur og ýmis námsgögn. Í ár gaf fyrirtækið skólatöskur og pennaveski til allra nemenda í 1. bekk í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð vill koma á framfæri þakklæti til Sæplast Iceland ehf. fyrir þessa veglegu gjöf sem skiptir heimilin í sveitarfélaginu miklu máli.