Fræðsluráð
211. fundur
14. desember 2016
kl.
08:15
-
11:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Steinunn Jóhannsdóttir
formaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
varaformaður
Felix Rafn Felixson
aðalmaður
Auður Helgadóttir
aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir
kennsluráðgjafi á Fræðslusviði Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning 2017
Með fundarboði fylgdi bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 17. nóvember 2016 þar sem kynnt er Íslandsmót iðn- og verkgreina og einnig framhaldsskólakynning sem verður í Laugardagshöllinni í Reykjavík 16.-18. mars 2017 á vegum Verkiðnar. Tilgangur keppninnar er að auka sýnileika iðn- og starfsmenntunar, bæta ímynd iðn- og verkgreina og vekja áhuga grunnskólanema á slíku námi.Verkiðn styrkir ferðir grunnskólanemenda með þátttöku í ferðakostnaði. Verkiðn óskar eftir tilnefningu tengiliðs frá skólum vegna skipulagningar á ferðum og fjölda nemenda frá hverjum skóla.
Fræðsluráð felur skólastjórnendum í Dalvíkurskóla að taka ákvörðun um það hverju sinni hvort tilboð sem þetta verður nýtt og felur Gísla Bjarnasyni, skólastjóra að skoða málið nánar.
2.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Hlynur fór yfir stöðumat fjárhags frá janúar-nóvember 2016 fyrir Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og Krílakot. Tölulegar upplýsingar fylgdu fundarboði.
Lagt fram til kynningar.
3.
Þróunarstarf á leikskólanum Krílakoti
Drífa Þórarinsdóttir leikskólastjóri Krílakots sagði frá 700.000 króna styrk sem leikskólinn fékk á árinu úr Þróunarsjóði innflytjendamála og frá þróunarstarfi sem fram fer undir skammstöfuninni LAP og hófst haustið 2015 með styrk frá Sprotasjóði til tveggja ára. Markmið LAP (Linguistically Appropriate Practice)eru: -að kennarar tileinki sér að að efla tvítyngi, fjölmenningarlegan skólabrag, vinna gegn fordómum og auka víðsýni. -að styðja við börn af erlendum uppruna og efla sjálfsmynd þeirra. -að móðurmál allra sé viðurkennt og litið á tvítyngi sem styrkleika en ekki veikleika.
Fræðsluráð þakkar Drífu fyrir góða kynningu og fagnar því merkilega starfi tengdu fjölmenningu sem unnið er á Krílakoti. Fræðsluráð hvetur sveitarstjórn til að marka heildarstefnu í fjölmenningarmálum fyrir sveitarfélagið og vinna að því að efla tengsl íbúanna.
4.
Ráðning leikskólastjóra á Krílakot
Hlynur gerði grein fyrir ráðningu leikskólastjóra á Krílakot og þeim gögnum sem fylgdu með fundarboði. Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri frá og með 1. mars 2017.
Lagt fram til kynningar. Drífa Þórarinsdóttir mun gegna starfi leikskólastjóra til og með 3. febrúar 2017.
5.
Ytra mat Menntamálastofnunar- Leikskólinn Krílakoti
Með fundarboði fylgdi skýrsla Menntamálastofnunar um niðurstöður Ytra mats á leikskólanum Krílakoti sem fram fór í ágúst s.l. Skila þarf umbótaáætlun fyrir 1. febrúar er 2017.
Fræðsluráð fagnar góðri niðurstöðu matsins sem sýnir að skólastarfið á Krílakoti er mjög gott. Leikskólastjóra er falið að vinna drög að úrbótaáætlun fyrir næsta fund ráðsins.
9.
Umsókn um tónlistarskóla utan lögheimilissveitarfélags
Með fundarboði fylgdi bréf frá Hjörleifi Erni Jónssyni, skólastjóra Tónlistarskólans á Akureyri, dagsett 22. nóvember 2016, reglur um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til eflingar tónlistarnámi og jöfnunar á aðstöðumun nemenda dags. 5. ágúst 2011 og áætlaður kennslukostnaður í Tónlistarskólanum á Akureyri skólaárið 2016-2017. Bréf Hjörleifs varðar nemanda með lögheimili í Dalvíkurbyggð sem stundar grunnnám við Tónlistarskólann á Akureyri. Leitað er samþykkis Dalvíkurbyggðar fyrir að greiða þann hluta kennslukostnaðar sem Akureyrarbær greiðir almennt fyrir nemendur með lögheimili þar.
Fræðsluráð hafnar erindinu með 4 atkvæðum þar Hlynur hafði staðfestingu frá skólastjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga á að skólinn getur boðið nemandanum sambærilegt nám sem fram færi á Akureyri eða á Dalvík.