Fara í efni

Fræðsluráð

210. fundur
9. nóvember 2016 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Steinunn Jóhannsdóttir formaður
Lilja Björk Ólafsdóttir varaformaður
Auður Helgadóttir aðalmaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir starfsmaður fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2017
Málsnúmer 201606116
Með fundarboði fylgdi tillaga sviðsstjóra að skiptingu fjárhagsramma fræðslumála (04) fyrir árið 2017 og er tillagan innan samþykkts fjárhagsramma.Fræðsluskrifstofa 28.746.037 Fræðsluráð 1.696.903 Stuðningur 6.718.155 Krílakot 170.056.432 Dagvistun Sameiginlegir liðir 200.004 Dalvíkurskóli 395.874.099 Árskógur 89.871.639 Tónlistarskólinn á Tröllaskaga 32.593.280 Frístund 7.581.676 Ferðastyrkur v/náms 1.700.001 Umferðarskólinn 93.510 Framhaldsskólar Eyjafjarðar 3.607.354 Námsver 873.801 Samtals 739.612.891
Umræða varð um tölvutengingu í Dalvíkurskóla. Unnið er eftir fyrirliggjandi endurnýjunaráætlun og ekki er komið að endurnýjun á Multicid kerfinu fyrr en á árinu 2018. Sama kerfi er í notkun í Árskógarskóla og staðan þar er eins. Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum rammann eins og hann liggur fyrir.
2.
2017 Gjaldskrá - Fræðsluráð
Málsnúmer 201611046
Með fundarboði fylgdu gjaldskrár ársins 2017 fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskaga, útleigu á Dalvíkurskóla, Frístund og leikskólana í Dalvíkurbyggð eins og þær líta út eftir 3,9% hækkun á gjaldskrám ársins 2016.
Nákvæm hækkun gjaldskráa samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
3.
Breytingar á lögum um grunnskóla nr. 91/2008
Málsnúmer 201610128
Með fundarboði fylgdu lög um breytingar á lögum um grunnskóla nr. 91/2008 sem undirrituð voru 16. júní 2016 og skýringar við frumvarp um breytingu á lögum um grunnskóla dags. 2. ágúst 2016.
Lagt fram til kynningar.
4.
Samræmd próf 2016
Málsnúmer 201606119
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla gerðu grein fyrir niðurstöðum samræmdra prófa í 4. og 7. bekk Dalvíkurskóla og 4. bekk Árskógarskóla. Gögn þar að lútandi fylgdu með fundarboði.
Fræðsluráð þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.
5.
Námsárangur
Málsnúmer 201503209
Með fundarboði fylgdu fundargerðir 27. og 28. fundar vinnhóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla.
Gísli og Dóróþea svöruðu fyrirspurnum um fundargerðirnar. Fræðsluráð þakkar upplýsingarnar og fagnar þessari vinnu.