Fræðsluráð
206. fundur
14. júní 2016
kl.
08:15
-
11:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Björk Ólafsdóttir
formaður
Steinunn Jóhannsdóttir
varaformaður
Felix Rafn Felixson
aðalmaður
Heiða Hringsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir
starfsmaður Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Málefni tónlistarskóla
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri kynnti stöðuna í sameiningarmálum tónlistarskólanna í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð.
Fræðsluráð þakkar Hlyni fyrir upplýsingarnar.
2.
Innra mat skóla 2016
Með fundarboði fylgdu skýrslur um innra mat Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, Árskógarskóla, Krílakots og Kátakots sem og Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2015-2016. Einnig fylgdu matsáætlanir fyrir næsta skólaár frá leik- og grunnskóla.Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri Árskógarskóla kynnti sjálfsmatsskýrslu Árskógarskóla fyrir skólaárið 2015-2016.Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri Káta- og Krílakots kynnti sjálfsmatsskýrslu leikskólans fyrir skólaárið 2015-2016.
Fræðsluráð þakkar skólastjórunum fyrir greinargóðar skýrslur og hvetur stjórnendur til að halda áfram góðu starfi skólanna. Skýrslur Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og Dalvíkurskóla verða teknar fyrir á næsta fundi ráðsins.
3.
Grænfáninn
Með fundargerð fylgdu skýrslur Dalvíkurskóla, Krílakots, Kátakots og Árskógarskóla um Grænfánaverkefnið vegna umsókna um flöggun Grænfána vorið 2016. Allir skólarnir flögguðu Grænfána 26. maí 2016.
Fræðsluráð þakkar skólastjórunum upplýsingarnar og lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem skólarnir leggja í að uppfylla þær kröfur sem felast í þátttöku í Skóla á grænni grein (Grænfánaverkefnið).
4.
Kostnaður vegna námsgagna fyrir Samb. Ísl. Sveitarfélaga
Með fundarboði fylgdi bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem tilmælum er beint til skólanefnda og skólaskrifstofa að þær kanni framkvæmd innkaupa á námsgögnunum í sínu sveitarfélagi og hlut foreldra í þeim kostnaði. Einnig að beina því til skólastjóra að halda kostnaði foreldra í lágmarki.
Sviðsstjóri hefur aflað upplýsinga hjá skólastjórum Árskógarskóla og Dalvíkurskóla um hvernig að þessu er staðið og sýnist ekki tilefni til að ætla að það sem foreldrar þurfa að greiða sé verulega íþyngjandi. Fræðsluráð hvetur skólastjórnendur til að vera vakandi fyrir að kostnaður við námsgögn sé innan hóflegra marka.
5.
Námsárangur
Með fundarboði fylgdu tvær fundargerðir starfshóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla. Dóróþea Reimarsdóttir, starfsmaður fræðslusviðs, gerði grein fyrir stöðu þessarar vinnu.
Fræðsluráð þakkar starfshópnum og starfsmönnum skólans þá vinnu sem þeir hafa lagt af mörkum í vetur.