Fara í efni

Fræðsluráð

204. fundur
26. apríl 2016 kl. 08:15 - 10:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Björk Ólafsdóttir formaður
Steinunn Jóhannsdóttir varaformaður
Felix Rafn Felixson aðalmaður
Auður Helgadóttir aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson varamaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir starfsmaður
Hlynur Sigursveinsson sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Reimarsdóttir/Hlynur Sigursveinsson Starfsmaður/sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skólastarf í Árskógi
Málsnúmer 201512115
Skýrsla starfshóps um eflingu og framtíð Árskógarskóla og starfsemi í Árskógi lögð fram til kynningar af fulltrúum í starfshópnum. Skýrslan fylgdi fundarboði.
Skýrsla og kynning vinnuhópsins rædd og aðilar sammála um að halda áfram leik- og grunnskólastarfi við Árskógarskóla samkvæmt núverandi skipulagi enda sé það forsenda þess að efla og styrkja búsetu á Árskógsströnd. Fræðsluráð tekur undir tillögu vinnuhópsins um að við innritun barna í leik- og grunnskóla verði foreldrum kynntir allir þeir valkostir sem í boði eru í sveitarfélaginu. Það kallar á einfaldari og aðgengilegri framsetningu á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.

Fræðsluráð leggur til að ákvörðum um fyrirkomulag á rekstri félagsheimilisins Árskógar verði vísað til íþrótta-og æskulýðsráðs sem skoði málið samhliða vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun á komandi hausti.

Fræðsluráð þakkar vinnuhópnum fyrir vel unnnin störf.