Fræðsluráð
195. fundur
26. ágúst 2015
kl.
08:15
-
10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórhalla Karlsdóttir
Formaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Varaformaður
Felix Rafn Felixson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Auður Helgadóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir
kennsluráðgjafi á Fræðslusviði Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Málefni tónlistarskóla 2015-2016
Magnús G. Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar gerði grein fyrir breytingum á stöðuhlutfalli tónlistarkennara, ráðningum nýrra kennara, breytingum á ræstingum og húsvörslu í skólanum og samningi vinnuskóla Dalvíkurbyggðar og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar um samrekstur og leigu á bifreiðinni BA-433.
Fræðsluráð þakkar Magnúsi G. Ólafssyni fyrir.
2.
Skólanámskrár 2015-2016
Magnús G. Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, gerði grein fyrir skólanámskrá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og starfi vetrarins. Drífa Þórarinsdóttir, leikskólastjóri, gerði grein fyrir skólanámskrá Krílakots og Kátakots og stöðu innritunar. Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, gerði grein fyrir skólanámskrá/starfsáætlun Árskógarskóla og árganganámskrá Árskógarskóla. Námskrá Dalvíkurskóla verður tekin fyrir á næsta fundi ráðsins.
Umræða varð um hugmynd að breyttri skipan varðandi eineltisteymi í Árskógarskóla og samstarf um sérfræðiþjónustu við Dalvíkurskóla. Formaður fræðsluráðs, Þórhalla F. Karlsdóttir, fylgir málinu eftir í samræmi við umræður á fundinum.
Fræðsluráð samþykkir skólanámskrá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, skólanámskrá Krílakots og Kátakots og skólanámskrá Árskógarskóla að undanskildu ákvæðinu um skipan eineltisteymis.
Fræðsluráð samþykkir skólanámskrá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, skólanámskrá Krílakots og Kátakots og skólanámskrá Árskógarskóla að undanskildu ákvæðinu um skipan eineltisteymis.
3.
Þjóðarsáttmáli um læsi
Á 741. fundi Byggðaráðs þann 6. ágúst 2015 var gerð eftirfarandi bókun:201508010-Þjóðarsáttmáli um læsiMenntamálaráðherra, Illugi Gunnarsson, hyggst gera þjóðarátak í læsi og býður því öllum bæjar- og sveitarstjórum að undirrita Þjóðarsáttmála um læsi. Aðilar samningsins þ.e. ríki og sveitarfélög skuldbinda sig til að vinna að því með öllum tiltækum ráðum til að ná markmiðum Hvítbókar um læsi. Skuldbinding ráðuneytisins er m.a. fólgin í gjaldfrjálsum aðgangi skóla að skimunarprófum og teymi ráðgjafa til aðstoðar. Vegna hagræðis mun ráðherra ekki heimsækja öll sveitarfélög til undirritunar en óskar eftir að undirritun fari fram í því sveitarfélagi sem er næst. Samkvæmt tímaáætlun ráðherra þá verður hann staddur í Fjallabyggð eftir hádegi þann 31. ágúst.Bókun byggðaráðs var eftirfarandi:Byggðaráð leggur til að sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar undirriti þjóðarsáttmálann ásamt ráðherra þann 31. ágúst í Fjallabyggð.
Kynningarbréf frá Menntamálaráðuneytinu og drög að samningnum voru lögð fram til kynningar.
Fræðsluráð lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið en lýsir yfir áhyggjum sínum yfir að kostnaður Dalvíkurbyggðar við verkefnið liggur ekki fyrir. Kennsluráðgjafi hefur sent fyrirspurn til Gylfa Jóns Gylfasonar, verkefnastjóra átaksins, og kallað eftir nánari upplýsingum en svör hafa ekki borist.
Fræðsluráð lýsir yfir ánægju sinni með verkefnið en lýsir yfir áhyggjum sínum yfir að kostnaður Dalvíkurbyggðar við verkefnið liggur ekki fyrir. Kennsluráðgjafi hefur sent fyrirspurn til Gylfa Jóns Gylfasonar, verkefnastjóra átaksins, og kallað eftir nánari upplýsingum en svör hafa ekki borist.
4.
Byrgjum brunninn-þróunarverkefni
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir, kennsluráðgjafi á Fræðslusviði Dalvíkurbyggðar, gerði grein fyrir þróunarverkefninu BYRGJUM BRUNNINN sem hún og Gunnhildur Helga Birnisdóttir stýrðu s.l. vetur í grunnskólum Dalvíkurbyggðar. Verkefnið fól í sér mat á stöðu nemenda í lestri og stærðfræði við upphaf grunnskóla og að strax sé brugðist við vísbendingum um veikleika í undirstöðuþáttum lestrar og stærðfræði í samstarfi við foreldra.
Lagt fram til kynningar.
Fræðsluráð þakkar Dóróþeu fyrir greinargóða og áhugaverða kynningu á verkefninu og lýsir ánægju sinni með það. Dóróþeu og Gunnhildi Helgu Birnisdóttur eru einnig færðar þakkir fyrir metnaðfulla vinnu við verkefnið. Fræðsluráð vonast til að verkefnið festist í sessi til framtíðar.
Fræðsluráð þakkar Dóróþeu fyrir greinargóða og áhugaverða kynningu á verkefninu og lýsir ánægju sinni með það. Dóróþeu og Gunnhildi Helgu Birnisdóttur eru einnig færðar þakkir fyrir metnaðfulla vinnu við verkefnið. Fræðsluráð vonast til að verkefnið festist í sessi til framtíðar.
5.
Námsárangur
Dóróþea Guðrún Reimarsdóttir, kennsluráðgjafi á Fræðslusviði Dalvíkurbyggðar, hefur tekið við hlutverki fráfarandi kennsluráðgjafa, Helgu Bjartar Möller, við verkefnið Bættur námsárangur í Dalvíkurskóla.
Dóróþea greindi frá vinnu síðasta fundar.
6.
Skólatöskur-þakkir
Promens Dalvík ehf færði nýverið verðandi 1. bekkingum í Dalvíkurbyggð veglegar skólatöskur að gjöf auk námsgagna sem eru á innkaupalista skólanna.
Fræðsluráð færir Promens Dalvík ehf þakkir fyrir þessa höfðinglegu gjöf.