Fræðsluráð
194. fundur
29. júní 2015
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórhalla Karlsdóttir
Formaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Varaformaður
Felix Rafn Felixson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Auður Helgadóttir
Aðalmaður
Starfsmenn
Helga Björt Möller
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Helga Björt Möller
Kennsluráðgjafi á fræðslu- og menningarsviði
Drífa Þórarinsdóttir, skólastjóri Kríla- og Kátakots sat fundinn undir liðum 1 og 2 frá klukkan 8:15 til kl.9:40
Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, sat fundinn undir lið 2, frá kl. 8:15-9:40. Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Guðríður Sveinsdóttir, fulltrúi starfsfólks grunnskóla, sátu fundinn undir liðum 2-5 frá kl.8:15-10:00.
Magnús Guðmundur Ólafsson, skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar boðaði forföll. Viktor Már Jónasson, fulltrúi foreldra grunnskólabarna og Freyr Antonsson fulltrúi foreldra leikskólabarna mættu ekki á fundinn.
Í upphafi fundarins þakkaði formaður fræðsluráðs Þórhalla Karlsdóttir Helgu Björt Möller kennsluráðgjafa fyrir störf sín á fræðsluskrifstofunni á síðustu árum en Helga hefur sagt starfi sínu lausu kennsluráðgjafi á fræðslusviði Dalvíkurbyggðar.

Dagskrá
1.
Sumarleyfi leikskóla
Í fundargerð frá 192. fundi fræðsluráðs 13.maí 2015 voru í lið 5 gerð mistök við bókun um sumarleyfi leikskóla sumarið 2016. Þar stendur að til standi að loka bæði Krílakoti og Kátakoti í fimm vikur sumarið 2016. Þetta á eingöngu við um Krílakot sem verður lokað í fimm vikur frá 4. júlí til 10. ágúst 2016 vegna framkvæmda við viðbyggingu. Kátakot verður aðeins lokað í fjórar vikur frá 11. júlí til 10. ágúst 2016.
2.
Ytra mat á skólum 2015
Skýrsla um ytra mat Dalvíkurskóla, Árskógarskóla, Káta- og Krílakots og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar var lögð fyrir fundinn. Skýrslan er unnin af fræðsluskrifstofu.Ákveðið var að skoða ytra mat Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar á næsta fundi þar sem Magnús skólastjóri skólans hafði boðað forföll og sat ekki fundinn.
Fræðsluráð þakkar fyrir þær upplýsingar sem skýrslan veitir.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson og Drífa Þórarinsdóttir fóru af fundi.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson og Drífa Þórarinsdóttir fóru af fundi.
3.
Skólastefna Dalvíkurbyggðar
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla, lagði fram uppfærða innleiðingaráætlun Dalvíkurskóla vegna skólastefnu Dalvíkurbyggðar og greindi frá þeim breytingum sem á henni hafa verið gerðar.
4.
Teymiskennsla
Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla gerði grein fyrir þeim skrefum sem stigin voru í skólanum varðandi teymiskennslu síðasta vetur.Hann sagði frá uppgjörsfundi kennara í tengslum við teymiskennsluna og því sem er á döfunni næsta vetur. Gísli lagði fram áætlun um teymiskennslu næsta vetrar.
Fræðsluráð lýsir yfir ánægju sinni með stöðuna á teymiskennslu í Dalvíkurskóla og þá áætlun sem liggur fyrir næsta vetur.
5.
Námsárangur
Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla greindi frá vinnu síðasta fundar starfshóps um bættan námsárangur og þeirri vinnu sem starfsfólk Dalvíkurskóla fór í við lok skólaársins.