Fara í efni

Fræðsluráð

187. fundur
25. nóvember 2014 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórhalla Karlsdóttir Formaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Varaformaður
Felix Rafn Felixson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Auður Helgadóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Helga Björt Möller Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs og Helga Björt Möller kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Heilsustefna Kríla- og Kátakots
Málsnúmer 201411091
Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri Krílakots og Kátakots sagði frá því að leikskólarnir myndu sækja um að gerast ,,Heilsuleikskólar" og starfa samkvæmt ,,Heilsustefnu". Hún kynnti hugmyndafræði Heilsustefnunnar og sagði frá því að búið væri að halda kynningu fyrir foreldra leikskólabarna og starfsfólk leikskóla og samkvæmt könnun er eindreginn vilji bæði hjá starfsfólki og foreldrum fyrir því að skólarnir gerðist Heilsuleikskólar.

Felix Felixsson kom inn á fundinn 8:21.
2.
Viðbygging við Krílakot
Málsnúmer 201311112
Kynntar voru teikningar eins og þær líta út núna en framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins bíður afgreiðslu sveitarstjórnar. Áætlunin gerir ráð fyrir að viðbyggingin verði tilbúin síðari hluta árs 2016. Skólastjóri benti á að enn þurfi að gera breytingar á teikningunum en þær eru minniháttar.
3.
Sumarleyfi leikskóla
Málsnúmer 201411090
Skólastjóri Kríla- og Kátakots og sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs tóku til umræðu hvort rétt væri að gera skoðanakönnun hjá foreldrum um sumarlokunartíma leikskóla. Eftir að sumarlokunartíminn var lengdur í 4 vikur hefur tímasetningin tekið mið af lokunartíma stærstu vinnustaðanna í sveitarfélaginu og Fiskideginum mikla.

Ákveðið var að óska eftir ábendingum frá foreldrum varðandi útfærslu á sumarlokun leikskóla í fréttabréfi leikskólanna í desember.
4.
Skólastefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201311117
Ný sameiginleg skólastefna leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla sveitarfélagins var lögð fyrir fundinn.

Fræðsluráð samþykkir stefnuna, þakkar starfshópnum góð störf og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Jafnframt óskar ráðið eftir því að hver skóli geri innleiðingaráætlun um skólastefnuna og leggi fyrir ráðið hið fyrsta.
5.
Verkfall Félags tónlistarskólakennara
Málsnúmer 201410250
Rætt var um verkfall tónlistarskólakennara sem staðið hefur í fimm vikur en skrifað var undir samninga í nótt.

Fræðsluráð fagnar því að samningar hafi náðst. Ráðið leggur til að skólagjöld nemenda í tónlistarskóla verði endurgreidd hlutfallslega fyrir þann tíma sem verkfallið stóð.
6.
Niðurstöður samræmdra prófa
Málsnúmer 201411092
Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri Árskógarskóla kynntu niðurstöður samræmdra prófa úr sínum skólum frá síðasta hausti.

Fræðsluráð þakkar Gísla og Gunnþóri fyrir kynninguna.
7.
Vinnumat í grunnskólum
Málsnúmer 201411097
Gísli Bjarnason og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kynntu nýjustu tillögur um vinnumat grunnskólakennara sem fjallað er um í kjarasamningi grunnskólakennara frá 20. maí síðstaliðnum. Verið er að móta vinnumatið og í nóvember voru kynntar víða um land nýjustu hugmyndir í tengslum við það. Grunnskólakennarar munu kjósa um samþykkt vinnumatsins í febrúar næstkomandi.