Fara í efni

Fræðsluráð

178. fundur
11. desember 2013 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir Formaður
Heiða Hringsdóttir Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Sigurður Jörgen Óskarsson Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Helga Björt Möller Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Spjaldtölvur í skólastarfi
Málsnúmer 201310140
Farið var yfir samning um spjaldtölvur er varðar heimlán og einkaafnot nemenda af slíkum gripum. Samningurinn er þannig uppsettur að undir hann riti nemandi, foreldri og fulltrúi skóla. Í samningnum er fjallað um notkun, ábyrgð og umgengni við spjaldtölvurnar. <EM>Fræðsluráð samþykkir samninginn eins og hann liggur fyrir.</EM>
2.
Niðurstöður skólapúlsins
Málsnúmer 201312027
Björn Gunnlaugsson skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti nýjustu niðurstöður skólans úr Skólapúlsinum, könnun sem lögð er fyrir úrtak nemenda úr 6.-10. bekk. Almennt eru niðurstöðurnar betri en síðastliðið vor og flestir þættir nálægt landsmeðaltali. Þeir þættir sem koma best út eru skóla- og bekkjarandi, agi í tímum, líðan og heilsa ásamt nokkru minna einelti sem mælist miðað við landsmeðaltal. Þeir þættir sem koma verr út eru virkni nemenda, trú á eigin námsgetu og ánægja af náttúrufræði. Hildur Ösp sviðsstjóri fór stuttlega yfir niðurstöður Skólapúlsins í Árskógi og voru niðurstöður mjög jákvæðar.<EM>Fræðsluráð þakkar upplýsingarnar.</EM>
3.
Skólabúðir 7. bekkjar
Málsnúmer 201312034
Rætt var um skólabúðir 7. bekkjar á Húsabakka og kostnað vegna þeirra en hann hefur aukist nokkuð síðustu ár. Björn Gunnlaugsson fór yfir valkosti varðandi skólabúðir og hvernig fyrirkomulagið hefur verið. <EM>Fræðsluráð felur Birni að leggja fram skýrslu og uppgjör þegar 7. bekkur hefur farið í búðirnar.</EM><EM></EM>  
4.
Niðurstöður Pisa 2012
Málsnúmer 201312026
Björn Gunnlaugsson skólastjóri Dalvíkurskóla greindi frá helstu niðurstöðum Pisa 2012.  Enn hafa ekki borist niðurstöður hvers skóla og munu þær ekki berast fyrr en á næsta ári og verða þær þá teknar fyrir í fræðsluráði.
6.
Íbúaþing-allir í sama liði
Málsnúmer 201311138
Greint var frá íbúaþinginu Allir í sama liði sem fræðslusvið í samstarfi við félagssvið og íþrótta- og æskulýðssvið stóð fyrir þann 21. nóvember síðastliðinn. Þingið heppnaðist vel og fjölbreyttur hópur íbúa sveitarfélagsins með ólíkan bakgrunn hittist einn seinnipart og velti fyrir sér tækifærum og kostum fjölbreytileikans, hvernig væri að flytja á nýja staði og fordómum. Guðrún Pétursdóttir félagsfræðingur stýrði umræðum og fræddi þátttakendur um ýmsar hliðar fjölmenningar. Um 50 manns tóku þátt í þinginu og um helmingur þeirra skráði sig á lista sem áhugafólk um að vinna áfram í fjölmenningarmálum. Þróunarsjóður innflytjendamála styrkti fræðslusvið til að halda þingið.
7.
Deildarstjóri í tónlistarskóla
Málsnúmer 201312035
Undir þessum lið sat Magnús G. Ólafsson skólastjóri tónlistarskólans.Fræðsluráð bauð Magnús velkominn til starfa.Hildur og Magnús fóru yfir fund sem þau áttu með kennurum tónlistarskólans í gær þar sem meðal fundarefna var ráðning á deildarstjóra en stefnt er á að ráða deildarstjóra úr hópi kennara.
8.
Bréf frá velunnurum tónlistarskólans
Málsnúmer 201312052
Tekið var til umræðu bréf, dagsett 18. nóvember 2013, frá hópi sem nefnir sig velunnara tónlistarskólans.  <EM>Lagt fram.</EM>