Fara í efni

Fræðsluráð

177. fundur
13. nóvember 2013 kl. 08:15 - 10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir Formaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Sigurður Jörgen Óskarsson Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Helga Björt Möller Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Helga Björt Möller kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Skóladagatöl 2013-2014
Málsnúmer 201302096
Á 171. fundi fræðsluráðs var eftirfarandi bókað:<EM>1a) Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar</EM> <EM>Með fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014</EM><EM></EM><EM></EM><EM>Fræðsluráð óskar eftir frekari upplýsingum og frestar því afgreiðslu.</EM><EM></EM><EM></EM>Á 173. fundi fræðsluráðs var eftirfarandi bókað:a) <EM>Tónlistarskóli<BR>Með fundaboði fylgdu drög að skóladagatali Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar, gögn frá Fjallabyggð um hvernig skóladagatali tónlistarskólans þar er háttað sem og upplýsingar frá Akureyrarbæ.</EM><EM></EM><EM></EM><EM>Fræðsluráð samþykkir samhljóða skóladagatal Tónlistarskólans eins og það liggur fyrir en óskar eftir að á næsta fundi ráðsins verði allir viðburðir á vegum skólans sem greitt er fyrir tímasettir á skóladagatalinu og framvegis verði það gert við gerð þess. </EM><EM>Fræðsluráð fer þess á leit við skólastjóra að við gerð næsta skóladagatals (2014-2015) verði ekki gert ráð fyrir að tvöföldum dögum.</EM><EM></EM>Á 176. fundi fræðsluráðs var eftirfarandi bókað:<EM>3b)</EM><EM>Með fundarboði fylgdi skóladagatal Tónlistarskólans. Búið er að setja á dagatalið samstarf við Dalbæ en Kristjana Arngrímsdóttir heldur utan um það. Fræðsluráð ítrekar ósk sína um að tónfundir séu settir á skóladagatal og skipulagið verði lagt fram á næsta fundi ráðsins. Jafnframt voru nefnd önnur atriði varðandi skóladagatalið sem skólastjóri þarf að skoða.</EM><EM></EM><EM></EM><EM></EM><EM></EM><STRONG></STRONG>Skólastjóri fór yfir  þær breytingar sem hann hefur gert á skóladagatalinu frá því að það var síðast til umfjöllunar.<EM></EM><EM></EM>
2.
Niðurstöður samræmdra prófa
Málsnúmer 201311114
Björn Gunnlaugsson skólastjóri Dalvíkurskóla greindi frá niðurstöðum samræmdra prófa 2013.  Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri Árskógarskóla greindi frá  niðurstöðum samræmdra prófa 2013.  <EM>Til upplýsinga.</EM>
3.
Spjaldtölvur í skólastarfi
Málsnúmer 201310140
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs greindi frá stöðu mála varðandi innkaup á spjaldtölvum í skólum sveitarfélagsins. Nú þegar hefur fyrsta bekkjarsettið verið tekið í notkun í Dalvíkurskóla, nokkrir kennarar í skólunum hafa þegar fengið spjöld og fleiri  spjaldtölvur fyrir hina skólana eru væntanlegar.Jafnframt hefur Dalvíkurbyggð stutt starfsfólks sem vill kaupa sér spjaldtölvur á þann hátt að kaupin verða dregin af launum yfir þriggja mánaða skeið. Er þetta gert með það að markmiði að stuðla að frekari þekkingu starfsmanna á spjaldtölvum.Verið er að vinna reglur fyrir nemendur sem fá spjald til afnota og verða þær kynntar á næsta fundi ráðsins.Margrét Magnúsdóttir umsjónarkennari 7. bekkjar upplýsti um hvernig spjaldtölvunotkunin fer af stað í hennar bekk. <EM>Til upplýsinga.</EM>  
4.
Söguskjóður-styrkverkefni
Málsnúmer 201212031
Helga Björt Möller kennsluráðgjafi á fræðslusviði greindi frá seinni hluta Söguskjóðu-verkefnisins en þeim hluta er nýlokið. Verkefnið heppnaðist vel og 20 foreldrar tóku þátt í vinnunni. Betri þátttaka foreldra var í verkefninu en í fyrra skiptið. Helga sagði jafnframt að fjármagn til verkefnisins væri nú uppurið og óvíst með framhaldið. <EM>Fræðsluráð þakkar fyrir upplýsingarnar á þessu spennandi verkefni og vonast til að hægt verði að tryggja fjármögnun svo mögulegt verði að hafa það a.m.k. einu sinni á ári.</EM>
5.
Viðbygging við Krílakot
Málsnúmer 201311112
Með fundarboði fylgdi bréf frá skólastjóra Káta- og Krílakots. Fræðsluráð ræddi stöðu mála varðandi sameiningu Krílakots og Kátakots og nýbyggingu við Krílakot. Í drögum að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar, sem samþykkt var til seinni umræðu, kemur fram að viðbyggingunni yrði skipt á 2 ár, þ.e. 2016 og 2017. Það er því seinkun á verkinu miðað við það sem áður var gert ráð fyrir. <BR>Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri Krílakots og Kátakots gerði grein fyrir bréfi sem hún sendi frá sér varðandi seinkun á framkvæmdinni. Bréfið hefur verið tekið fyrir í byggðaráði og var skólastjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs falið að fara betur ofan í málið. Drífa upplýsti að sá fundur hafi átt sér stað og tillaga hafi komið frá þeim þess efnis að undirbúningur hefjist 2014 og framkvæmdir verði 2015 og 2016, verklok verði því í byrjun ágúst 2016. <EM>Fræðsluráð leggur mikla áherslu á að framkvæmd á viðbyggingu við Krílakot verði ekki</EM> <EM>seinkað um ár og að framkvæmdum verði lokið árið 2016.</EM>
6.
Skólastefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201311117
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs sagði frá fyrirhugaðri endurskoðun á skólastefnum sveitarfélagsins og sameiginlegri stefnu leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Óskað var eftir fulltrúa fræðsluráðs í vinnuhópinn. <EM>Fræðsluráð tilnefnir Auði Helgadóttur, formann fræðsluráðs í starfshópinn.</EM>
7.
Íbúaþing um fjölbreytileika mannlífs
Málsnúmer 201311113
Helga Björt Möller kennsluráðgjafi á fræðslusviði greindi frá íbúaþinginu <EM>Allir í sama liði</EM> en það tengist fjölbreytileika mannlífsins í Dalvíkurbyggð og verður haldið seinnipartinn 21. nóvember næstkomandi í Bergi. Ráðsmenn voru hvattir til að mæta og verður skráning auglýst á næstu dögum.
8.
Uppsögn skólastjóra Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201310059
Með rafpósti þann 13. október 2013 sagði Ármann Einarsson skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar starfi sínu lausu. Samkvæmt kjarasamningi er uppsagnarfrestur 3 mánuðir og miðast uppsögn við mánaðamót.  <EM>Fræðsluráð þakkar Ármanni störf sín við Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.</EM>
9.
Samstarf við Fjallabyggð
Málsnúmer 201311115
Sviðsstjóri upplýsti um viðræður við Fjallabyggð sem verið hafa varðandi fyrirhugað samstarf sveitarfélaganna en í rafpósti til fræðsluráðs þann 25. október var jafnframt rætt mögulegt samstarf  varðandi stjórnun tónlistarskóla sveitarfélaganna.Með fundarboði voru drög að samningi á milli sveitarfélaganna sem og rökstuðningur fyrir mögulegum ávinningi samstarfsins.  Verði samningurinn samþykktur af báðum samningsaðilum mun Magnús G. Ólafsson verða skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. <EM>Fræðsluráð samþykkir samninginn eins og hann liggur fyrir og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.</EM><EM>Fræðsluráð óskar eftir því að nýr skólastjóri taki til starfa sem fyrst. </EM>