Fara í efni

Fræðsluráð

176. fundur
9. október 2013 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir Formaður
Heiða Hringsdóttir Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Helga Björt Möller Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs og Helga Björt Möller kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál fræðslusviðs
Málsnúmer 201212010
Bókað í trúnaðarmálabók.
2.
Skólanámskrár 2013-2014
Málsnúmer 201305084
a) Skólanámskrár Krílakots og Kátakots. Teknar voru til umræðu og afgreiðslu skólanámskrár Kríla- og Kátakots. Jafnframt var tekið fyrir bréf frá leikskólastjóra og aðstoðarleikskólastjóra þar sem óskað er eftir að í framtíðinni verði heimilt að leggja fram eina námskrá fyrir báða skólana. <EM>Fræðsluráð samþykkir skólanámskrárnar eins og þær liggja fyrir. Jafnframt fagnar ráðið frumkvæði stjórnendanna og styður heilshugar við að ein námskrá nái yfir starfsemi þeirra í framtíðinni.</EM><EM></EM> <EM></EM><EM></EM>b) Skólanámskrá Árskógarskóla Tekin var til umræðu og afgreiðslu skólanámskrá Árskógarskóla en um minniháttar breytingar er að ræða. <EM>Fræðsluráð samþykkir skólanámskrána eins og hún liggur fyrir.</EM><EM></EM> <EM></EM><EM></EM>c)  Skólanámskrá Tónlistarskóla Davíkurbyggðar. Tekin var til umræðu og afgreiðslu skólanámskrá Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. <EM>Fræðsluráð samþykkir skólanámskrána eins og hún liggur fyrir.</EM> d) Skólanámskrá Dalvíkurskóla verður lögð fyrir á janúarfundi næsta árs en verið er að vinna að frekari breytingum á henni.
3.
Skóladagatöl 2013-2014
Málsnúmer 201302096






a) Tekin var til formlegrar afgreiðslu tillaga sem  fræðsluráð afgreiddi í tölvupósti nýverið, þar sem óskað er eftir að lokun vegna starfsmannafundar Kríla- og Kátakos á hádegi þriðjudaginn 29. október 2013 verði þess í stað mánudaginn 28. október 2013. Þessi breyting hefur þegar verið kynnt foreldrum og forráðamönnum.
 

<EM>Fræðsluráð samþykkir tillöguna.</EM>
<EM></EM> 
<EM></EM>

b) Skóladagatal Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
 

Á 173. fundi fræðsluráð var eftirfarandi bókað:
 

<I>Fræðsluráð samþykkir samhljóða skóladagatal Tónlistarskólans eins og það liggur fyrir en óskar eftir að á næsta fundi ráðsins verði allir viðburðir á vegum skólans sem greitt er fyrir tímasettir á skóladagatalinu og framvegis verði það gert við gerð þess.</I>
 
<EM></EM>
Með fundarboði fylgdi skóladagatal Tónlistarskólans. Búið er að setja á dagatalið samstarf við Dalbæ en Kristjána Arngrímsdóttir heldur utan um það. Fræðsluráð ítrekar ósk sína um að tónfundir séu settir á skóladagatal og skipulagið verði lagt fram á næsta fundi ráðsins. Jafnframt voru nefnd önnur atriði varðandi skóladagatalið sem skólastjóri þarf að skoða.
4.
Skóla- og innritunarreglur Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201309094
Með fundarboði fylgdu skóla- og innritunarreglur Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðara) Innritunarreglur Tónlistarskóla DalvíkurbyggðarSkólastjóri fór yfir innritunarreglur skólans.<EM>Fræðsluráð samþykkir reglurnar eins og þær liggja fyrir.</EM>  b) Skólareglur Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.Skólastjóri fór yfir skólareglur skólans og gerðar voru nokkrar breytingar á þeim. <EM>Fræðsluráð samþykkir reglurnar.</EM>