Fara í efni

Fræðsluráð

174. fundur
26. júní 2013 kl. 08:15 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir Formaður
Heiða Hringsdóttir Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Sigurður Jörgen Óskarsson Aðalmaður
Guðný Sverrisdóttir Varamaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Nemendur í tónlistarnámi utan sveitarfélags
Málsnúmer 201305088
Ármann Einarsson skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar fór yfir greinargerð vegna nemenda sem stunda tónlistarsnám utan sveitarfélags en eru með lögheimili í sveitarfélaginu. Jafnframt fór hann yfir hvernig útlitið er fyrir næsta skólaár. <EM>Fræðslurráð þakkar fyrir greinargerðina.</EM>
2.
Innra mat/ sjálfsmatsáætlun
Málsnúmer 201210008
Með fundarboði fylgdu sjálfsmatsskýrslur allra skóla Dalvíkurbyggðar sem og uppfærð áætlun um innra mat/sjálfsmat. <EM>Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með vinnuna og þakkar kærlega fyrir góðar skýrslur sem verða aðgengilegar á heimasíðum skólanna.</EM>
3.
Innleiðing nýrrar aðalnámskrár (leik- og grunnskóli).
Málsnúmer 201112016
Með fundarboði fylgdu upplýsingar um hvar leik- og grunnskólar sveitarfélagsins eru staddar varðandi innleiðingu á nýrri aðalnámskrá.<EM>Fræðsluráð þakkar upplýsingarnar og hvetur skólanna til vinna áfram af metnaði að innleiðingu.</EM>
4.
Skólanámskrár 2012-2013
Málsnúmer 201208010
Með fundaboði fylgdi skólanámskrá og starfsáætlun 2012-2013 fyrir Árskógarskóla  í einu skjali og er þetta  fyrsta skólanámskrá skólans. <EM>Fræðsluráð fagnar námskránni og staðfestir hana. Jafnframt   óskar fræðsluráð starfsfólki og stjórnendum skólans til hamingju.</EM>
5.
Upplýsingatækni í skólastarfi
Málsnúmer 201305089
<EM>Frestað.</EM>
6.
Læsisstefna Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201305085
<P>Með fundarboði fylgdi læsisstefna Dalvíkurskóla en hún tilgreinir áherslur í lestri fyrir hvern árgang og stuðlar að eðlilegu flæði í kennslu.</P><P></P><P><EM>Fræðsluráð fagnar læsisstefnunni og þeim metnaði sem lagður hefur verið í vinnu hennar.</EM></P>
7.
Leiðbeiningar til sveitastjórna um viðauka við fjárhagsáætlun
Málsnúmer 201306007
<EM>Lagt fram.</EM>
8.
Ytra mat og kannanir
Málsnúmer 201302097
Með fundarboði fylgdi áætlun um ytra mat fræðslu- og menningarsviðs á skólum sveitarfélagsins. <EM>Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með áætlunina sem og þann faglega metnað sem býr að baki.</EM>
9.
Gildi fræðslu- og menningarsviðs
Málsnúmer 201306031
Sviðsstjóri og formaður upplýstu um þá vinnu sem fór fram við ákvörðun og útfærslu á gildum fræðslu- og menningarsviðs. Gildin sem urðu fyrir valdinu eru virðing, jákvæðni og metnaður og mun verða aðgengilegt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar hvað felst í þeim og leiðir til að festa í essi. <EM>Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með þessa vinnu.</EM>
10.
Starfsáætlun 2014
Málsnúmer 201305087
Á næsta fundi ráðsins er stefnt að því að starfs- og fjárhagsáætlun verði til afgreiðslu.Rætt var um hvaða verkefni ráðið telur að mikilvægt að verði sett í forgang og voru teknir niður minnispunktar sem munu nýtast við gerð starfsáætluninnar.Jafnframt var rætt um skiptingu á fjárhagsramma og mun sviðsstjóri vinna tillögu út frá þeirri umræðu.
11.
Trúnaðarmál fræðslusviðs
Málsnúmer 201212010
Bókað í trúnaðarmálabók.