Fara í efni

Fræðsluráð

171. fundur
13. mars 2013 kl. 08:00 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir Formaður
Heiða Hringsdóttir Varaformaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir Aðalmaður
Sigurður Jörgen Óskarsson Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Sviðstjóri
Helga Björt Möller Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs og Helga Björt Möller, kennsluráðgjafi
Dagskrá
1.
Skóladagatöl 2013-2014
Málsnúmer 201302096
a) Tónlistarskóli DalvíkurbyggðarMeð fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014 <EM>Fræðsluráð óskar eftir frekari upplýsingum og frestar því afgreiðslu.</EM> b) KrílakotMeð fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014Sumarlokun 2013 fyrir börn verður frá 15. júlí til og með 14. ágúst kl. 12.15<EM>Fræðsluráð samþykkir skóladagatalið eins og það liggur fyrir.</EM><EM></EM> c) KátakotMeð fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014Sumarlokun 2012-2013 fyrir börn verður frá 15. júlí til og með 14. ágúst kl. 12.15<EM>Fræðsluráð samþykkir skóladagatalið eins og það liggur fyrir.</EM><EM></EM> d) ÁrskógarskóliMeð fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014<EM>Fræðsluráð samþykkir skóladagatalið eins og það liggur fyrir en þó verður skoðað fram að næsta fundi hvort skipulagsdagurinn í nóvember færist til 15. nóv fremur en 18. nóv. </EM> e) DalvíkurskóliMeð fundarboði fylgdu drög að skóladagatali fyrir skólaárið 2013-2014<EM>Afgreiðslu frestað.</EM>
2.
Ytra mat og kannanir
Málsnúmer 201302097
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og kennsluráðgjafi sögðu frá vinnu við þróun skipulags ytra mats í skólum sveitarfélagsins og er reiknað með að áætlunin verði tilbúin fyrir vorið. Jafnframt voru kynntar niðurstöður úr foreldrakönnun Dalvíkurskóla en niðurstöðurnar voru mjög jákvæðar, niðurstöðurnar í heild má sjá á heimasíðu Dalvíkurskóla. Starfsmannakönnun fyrir alla starfsmenn fræðslu- og menningarsviðs er tilbúin og verður send út á næstu dögum sem og foreldrakannanir vegna annarra skóla en Dalvíkurskóla. Á næsta ári verður foreldrakönnunin sameiginleg fyrir foreldra leik- og grunnskólabarna en sérstök könnun verður send til foreldra barna í tónlistarskólanum.
4.
Útileiksvæði í Árskógi
Málsnúmer 201303098
Skólastjóri gerði grein fyrir þeirri vinnu sem hafin er við hönnun leiksvæðis og sýndi myndir því tengdu.  
5.
Trúnaðarmál fræðslusviðs
Málsnúmer 201212010
<EM>Bókað í trúnaðarmálabók.</EM>