Fræðsluráð
169. fundur
12. desember 2012
kl.
08:15
-
10:30
í stóra salnum í Bergi
Nefndarmenn
Auður Helgadóttir
Formaður
Guðrún Erna Rudolfsdóttir
Aðalmaður
Sigurður Jörgen Óskarsson
Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir
Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðstjóri
Hólmfríður G Sigurðardóttir
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Þakkir
a) DalpayVið skólabyrjun í haust, eins og undanfarin haust, færði Dalpay öllum nemendum sem voru að hefja grunnskólagöngu í Dalvíkurbyggð skólatösku, pennaveski og önnur námsgögn. <EM>Fræðsluráð þakkar Dalpay fyrir þessa góðu gjöf sem vafalítið létti til með fjölskyldunum. Það er afar dýrmætt þegar fyrirtæki láta gott af sér leiða.</EM> b) VÍS Frá því að Dalvíkurskóli hóf störf í haust hefur starfsmaður VÍS, Guðný Sverrisdóttir, oftar en ekki staðið við gagnbrautina við upphaf skóladags og sinnt gagnbrautarvörslu sem og tekið hlýlega á móti börnunum. <EM>Fræðsluráð kann Guðnýju og VÍS bestur þakkir fyrir þetta þarfa framtak.</EM>
2.
Námsleyfi 2013 - 2014
Með fundarboði fylgdi bréf, dagsett 29. nóvember, frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kemur fram að Gísla Bjarnasyni skólastjóra Dalvíkurskóla og Kátakots hafi verið veitt námsleyfi skólaárið 2013-2014. <EM>Fræðsluráð óskar Gísla til hamingju með leyfið og samþykkir að hann nýti sér það.</EM><EM>Jafnframt felur fræðsluráð sviðsstjóra að að hefja leit að skólastjóra til að leysa af veturinn 2013-2014. </EM>
3.
Sundlaugin í Árskógi
Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. desember var eftirfarandi bókað: "Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti áætlun um rekstrarskostnað við Sundlaugina í Árskógi en í dag er hún notuð vikulega yfir vetrartímann í skólasund. <EM>Íþrótta- og æksulýðsráð óskar eftir því við skólastjóra Árskógarskóla að hann skipuleggi skólasundið í lotum frá áramótum, þ.e. að sundkennslan eigi sér stað þegar snjóa leysir. Jafnframt óskar ráðið eftir umsögn fræðsluráðs um fyrirkomulag sundkennslu sem og óskar eftir því að umhverfis- og tæknisvið vinni tíu ára viðhaldsáætlun fyrir sundlaugina"</EM><EM></EM> <EM>Fræðsluráð gerir ekki athugasemdir við þá tillögu íþrótta- og æskulýðsráðs en óskar eftir að fylgjast með málinu áfram.</EM>
4.
Skólaakstur - endurskoðun
Með fundarboði fylgdu drög að framlengingu á samningi við Ævar og Bóas ehf en þar er jafnframt gert ráð fyrir að grunnskólanemendur á Dalvík geti tekið skólabílinn og stundað nám í Árskógarskóla. <EM>Fræðsluráð samþykkir að framlengja samninginn fyrir skólaárin 2013-2014 og 2014-2015.</EM>
5.
Trúnaðarmál fræðslusviðs
<EM>Ekkert var bókað.</EM>