Fræðsluráð
161. fundur
11. janúar 2012
kl.
08:15
-
10:15
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Helga Björt Möller
kennsluráðgjafi.
Gísli Bjarnason skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar og Kátakots sat fundinn undir málefnum leik- og grunnskóla. Friðrik Arnarson deildarstjóri eldra stigs sat fundinn undir málefnum grunnskólans.
Kaldo Kiis skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar sat fundinn undir málefnum tónlistarskóla.
Dr
Dagskrá
1.
Uppbyggingarstefnan
&Formaður fræðsluráðs óskaði eftir því að skólastjórar skólanna gerðu stuttlega grein fyrir gangi innleiðingar Uppbyggingarstefnunnar í skólum sveitarfélagsins. Í Grunnskóla Dalvíkurbyggðar gengur innleiðingin vel. Ánægja var meðal starfsfólks með námskeiðið í ágúst. Fundað hefur verið u.þ.b. einu sinni í mánuði vegna stefnunnar og farið var í að setja niður á blað skýr mörk skólans á haustdögum. Næst á dagskrá er að starfsfólk móti með sér starfsmannasáttmála en fundað verður vegna þess í vikunni. Í ágúst næstkomandi er stefnt á að fá Joel Shimoji hingað til að halda námskeiðið Uppbygging 2. Verkefnastjórinn í grunnskólanum heldur vel utan um innleiðinguna. Á Krílakoti er verið að vinna að sáttmála og umræður um hvernig mögulegt er að kenna börnum viðmið og gildi. Á Kátakoti hefur verið unnið með bókina Uppeldi til ábyrgðar í vetur og leshringur var settur af stað. Á starfsdegi núna í janúar var tekinn tími í umræðu um stefnuna. Áður en innleiðing á Uppbyggingunni hófst voru búin að vera markviss vinnubrögð í þá átt að hjálpa börnum að leysa ágreining sín á milli á Leikbæ. Hafinn er lestur á bókinni Uppbygging til ábyrgðar en ekki hefur tekist að taka umræðu og klára lesturinn vegna tímaskorts. Í Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar var leshópur kennara að störfum í vor og í október kom verkefnastjóri Uppbyggingarinnar í grunnskólanum í spjall í tónlistarskólann. Skoðað verður hvaða skref verða tekin í framhaldinu og þau kynnt.
2.
Samræmd próf og kannanir 2011
&&Gísli Bjarnason skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar kynnti ferli viðbragða við niðurstöðum samræmdra prófa og þær aðgerðir sem skólinn fer í ár hvert þegar niðurstöður liggja fyrir. Friðrik Arnarson deildarstjóri eldra stigs Grunnskóla Dalvíkurbyggðar kynnti niðurstöður Skólapúlsins. Í Skólapúlsinum er könnuð líðan nemenda í 6.-10. bekk grunnskólans og borin saman við líðan nemenda annarra skóla. Umbótaáætlun verður unnin í vor þegar niðurstöður tveggja ára liggja fyrir en í nýlegum niðurstöðum var t.d. nokkur munur á líðan stúlkna og drengja í skólanum stúlkum í óhag. Umræður áttu sér stað í kjölfarið.
3.
Skólanámskrá Grunnskóla Dalvíkurbyggðar
&Gísli Bjarnason skólastjóri Grunnskóla Dalvíkurbyggðar kynnti stöðuna á skólanámskrá skólans. Verið að leggja lokahönd á útgáfu hennar en vegna veikinda náðist ekki að vinna eins mikið í henni og væntingar stóðu til um. Hann telur þó raunhæft að leggja fram lokaútgáfu skólanámskrárinnar fyrir fræðsluráðsfund í febrúar.
4.
Önnur mál 2012
&a) Ferð Krílakots til Englands Starfsmenn Krílakots eru á leið í námsferð til Englands og vegna þessa er samþykkt breyting á skóladagatali um að skólinn verði lokaður miðvikudaginn 16. maí en þess í stað munu tveir hálfir starfsdagar falla út á móti.