Fara í efni

Fjölskylduráð

8. fundur
29. september 2026 kl. 08:30 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir formaður
Dominique Gyða Sigrúnardóttir varaformaður
Hörður Snævar Jónsson aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Aðrir sem sitja fund: Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi.
Dagskrá
1.
Styrkir til íþróttafélaga - framtíðarsýn
Málsnúmer 202609127
Umræður um styrki til íþróttafélaga og framtíðarsýn
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að rekstrarsamningar við félögin haldi. Jafnframt verður stofnaður vinnuhópur með því markmiði að efla starfið og nýta fjármuni betur.

Fjölskylduráð samykkir með fimm atkvæðum að María Björk Stefánsdóttir og Erla Björk Jónsdóttir verða fulltrúar fjölskylduráðs í vinnuhópnum. Lagt er til að vinnuhópur fundi sem fyrst. Íþróttafulltrúi sér um að boða til fundar.
2.
Fjárhagsáætlun 2027; ráðning á starfsmanni fyrir knattspyrnuna
Málsnúmer 202608066
Tekið fyrir erindi frá Knattspyrnudeild þar sem að óskað er eftir styrk til að ráða starfsmann.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu inn í vinnuhóp um framtíðarsýn íþróttafélaga.
4.
Aðsókn og opnunartímar Íþróttamiðstöðar
Málsnúmer 202511106
Íþróttafulltrúi leggur fram kostnaðargreiningu vegna hugmynda um breytingar á opnun í Íþróttamiðstöð.
Fjölskylduráð vill hrósa íþróttafulltrúa fyrir vel unnin gögn með málinu sem auðveldar ákvörðunartöku. Á þeim verðbólgutímum sem nú eru teljum við að þetta er ekki rétti tímapunkturinn til að fara í útgjaldaraukningu við sundlaugina. Fjölskylduráð leggur til með fimm atkvæðum að opnunartími um helgar verði 09:00 til 16:00 bæði laugardag og sunnudag. Þar með lengjum við opnun á sunnudögum en fórnum einum klukkutíma á laugardögum sem er alla jafna illa nýttur af íbúum sveitarfélagsins.
5.
Umsókn um styrk frá félagi eldri borgara
Málsnúmer 202608145
Tekið fyrir erindi frá félagi eldriborgara þar sem óskað er eftir styrk til að bæta við einum íþróttatíma.

Einnig tekið fyrir erindi frá eldriborgurum þar sem að þeir seigja upp styrktarsamningi og óska jafnframt eftir að nýr samningur verður gerður í tengslum við fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2027.
Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kom inn á fund kl. 09:40
Félag eldriborgara er búið að segja upp styrktarsamningi við Dalvíkurbyggð til 2028. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela sviðstjóra félagsmálasviðs og íþróttafulltrúa að kalla til fulltrúa frá félagi eldriborgara til fundar og í kjölfarið að ganga frá nýjum samningi.