Fara í efni

Fjölskylduráð

7. fundur
22. september 2026 kl. 08:15 - 11:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir formaður
Dominique Gyða Sigrúnardóttir varaformaður
Hörður Snævar Jónsson aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Aðrir sem sitja fund: Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, Elvý Guðríður Hreinsdóttir, skólastjóri Krílakots, Valgerður Inga Júlíusardóttir, aðstoðarskólastjóri á Krílakoti, Una Pálmadóttir, fulltrúi starfsfólks á Krílakoti og Ingigerður Lilja Jónsdóttir, fulltrúi foreldra.
Dagskrá
1.
Kynning á niðurstöðum starfsmannakönnunar er varðar teymiskennslu í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202609100
Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar hjá Háskólanum á Akureyri, fer yfir niðurstöður úr könnun sem lagt var fyrir kennara og stuðningsfulltrúa í Dalvíkurskóla.
Fjölskylduráð þakkar Gunnari Gíslasyni, forstöðumanni Miðstöðvar skólaþróunnar hjá HA, fyrir góða kynningu á niðurstöðum á vinnu við teymiskennslu í Dalvíkurskóla.
Friðrik fór af fundi kl. 08:45
2.
Endurskoðun á innritunarreglum í leikskóla
Málsnúmer 202609075
Innritunarreglur teknar til endurskoðunnar
Leikskólafólk kom inn á fund kl. 08:50
Innritunarreglur teknar fyrir í fjölskylduráði. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum innritunarreglur og vísa reglum til frekari vinnslu inn í Byggðaráð.
3.
Starfsáætlanir fræðslu - og félagsmálasviðs
Málsnúmer 202609031
Teknar fyrir drög að starfsáætlunum Leikskólans á Krílakoti, Frístundar og Félagsmiðstöðvar Dallas, Íþróttamiðstöðvar og Félagsmálasviðs.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum drög starfsáætlun Krílakots.

Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum drög starfsáætlun Frístundafulltrúa.

Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum drög starfsáætlun íþróttamiðstöðvar.

Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum drög starfsáætlun Félagsmálasviðs.
Leikskólafólk fór af fundi 09:20
4.
Umsókn um styrk frá félagi eldri borgara
Málsnúmer 202608145
Félag eldri borgara í Dalvíkurbyggð óskar eftir styrk fyrir leikfimi tíma.
Máli frestað til næsta fundar hjá ráðinu.
5.
Sumarnámskeið sumarið 2026
Málsnúmer 202609098
Hera Margrét Guðmundsdóttir, Frístundafulltrúi Dalvíkurbyggðar, fer yfir aðsóknartölur í sumarfrístund og framkvæmd hennar sumarið 2026.
Hera kom inn á fund 09:20
Fjölskylduráð þakkar Heru fyrir góða kynningu er varðar sumarfrístund sumarið 2026.
Hera fór af fundi 09:45
6.
Fjárhagsáætlun 2027; infrarauðu rklefi
Málsnúmer 202606169
Tekið fyrir erindi frá Unni Valgeirsdóttur dags. 25.06.2026 þar sem hún kom með þá tillögu að keyptur verði innfrarauður saunaklefi í sundlaug Dalvíkurbyggðar.
'iþróttafulltrúi, Jónsi kom inn á fund kl. 09:45
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að hafna erindinu.
7.
Aðsókn og opnunartímar Íþróttamiðstöðar
Málsnúmer 202511106
Jón Stefán Jónsson, fer yfir aðsókn og opnunartíma í íþróttamiðstöð.
Fjölskylduráð felur íþróttafulltrúa að vinna kostnaðaráætlun varðandi það að lengja opnunartíma á sundlaug Dalvíkurbyggðar á virkum dögum til kl 21:00 á kvöldin.
8.
Fjárhagsáætlun 2027; Samstarfstillaga - uppbygging akstursíþrótta
Málsnúmer 202608075
Tekið fyrir erindi frá Miðgarði akstursíþróttafélagi - Samstarfstillaga - uppbygging akstursíþrótta í Dalvíkurbyggð.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að gerður verði rekstrarsamningur við Miðgarð uppá 500.000 kr. Einnig samþykkir með fimm atkvæðum fjölskylduráð að styrkja 500.000 kr. Snocross vegna mótahalds. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að unnið verði að öðrum þáttum samkvæmt minnisblaði teymis.
9.
Fjárhagsáætlun 2027; beiðni um styrk vegna kaupa á búnaði
Málsnúmer 202608035
Tekið fyrir erindi frá fimleikadeild UMFS þar sem er ósk um styrk til áhaldakaupa.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að hafna erindinu. Telja að þær tvær miljónir sem fimleikadeildin fær í styrk eigi að fara að hluta til í búnaðarkaup.
10.
Styrkir til íþróttafélaga - framtíðarsýn
Málsnúmer 202609127
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi fer yfir tölur varðandi styrki til íþróttafélaga.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að myndaður verði vinnuhópur samkvæmt minnisblaði íþróttafulltrúa til að fara yfir styrkjamál íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Aukafundur vegna vinnu við Fjárhagsáætlun verður 29. september 2026.
11.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
Jón Stefán Jónsson, fer yfir gjaldskrá íþróttamiðstöðvar fyrir fjárhagsárið 2027.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá íþróttamiðstöðvar fyrir fjárhagsárið 2027.
Jónsi fór af fundi kl 11:20
12.
Fátækt barna og staða barnafjölskyldna
Málsnúmer 202609093
Tekið fyrir erindi frá Stjórnarráði íslands dags 14.09. 2026
Lagt fram til kynningar