Fjölskylduráð
6. fundur
8. september 2026
kl.
08:15
-
10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir
formaður
Dominique Gyða Sigrúnardóttir
varaformaður
Hörður Snævar Jónsson
aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir
aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Stjórnendur skóla og sviðsstjóri fara yfir fjárhagslegt stöðumat hjá stofnunum sem tengjast fjölskylduráði.
Lagt ram til kynningar.
2.
Starfsáætlun Fjölskylduráðs
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir starfsáætlun fjölskylduráðs.
Lagt fram til kynningar
3.
Gjaldskrár 2027
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fer yfir gjaldskrá fræðslusviðs, Þórhalla Karlsdóttir, þroskaþjálfi fer yfir gjaldskrá félagsmálasviðs og Jón Stefán íþróttafulltrúi fer yfir gjaldskrá í íþróttamiðstöð.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá Fræðslusviðs og Félagsmálasviðs. Gjaldskrá Félagsmálasviðs var lögð fyrir undir lið 8.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar verður tekin fyrir á næsta fundi hjá ráðinu.
Gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar verður tekin fyrir á næsta fundi hjá ráðinu.
4.
Árskógarskóli
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fara yfir hvernig hafi gengið með lokun á grunnskólastigi í Árskógarskóla.
Aðlögun nemenda tókst vel og ánægjulegt að allir starfsmenn sem störfuðu í grunnskólanum eru komnir með atvinnu.
5.
Íslenska æskulýðsrannsóknin. Niðurstöður grunnskólakönnunar.
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, fara yfir helstu niðurstöður á Íslensku æskulýðsrannsókninni 2026.
Lagt fram til kynningar
6.
Reglugerð um símafrí í grunnskólum
Lagt fram til kynningar reglugerð um símafrí í grunnskólum sett ? skýr rammi um námsfrið og vellíðan.
Lagt fram til kynningar
7.
Umsókn um framlag skólaakstur og grunnskólaframlag
Lagt fram til kynningar, umsóknir um framlag til skólaksturs frá Jöfnunarsjóði og grunnskólaframlag.
Lagt fram til kynningar
8.
Starfsáætlanir fræðslu - og félagsmálasviðs
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri - fræðslu og menningarsviðs og Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla fara yfir fyrstu drög að starfsáætlun skólaskrifstofu og Dalvíkurskóla.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum drög að starfsáætlun Dalvíkurskóla og skólaskrifstofu.
Vísar starfsáætlunum til frekari umræðu í Byggðaráði.
Vísar starfsáætlunum til frekari umræðu í Byggðaráði.
9.
Fjárhagsáætlun 2026
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir sex mánaða frávikagreiningu í Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar.