Fjölskylduráð
11. fundur
10. nóvember 2026
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Dominique Gyða Sigrúnardóttir
varaformaður
Hörður Snævar Jónsson
aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir
aðalmaður
Erla Björk Jónsdóttir
aðalmaður
Árný Ósk Hauksdóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
María Björk Stefánsdóttir, formaður fjölskylduráðs boðaði forföll og í hennar stað kemur Árný Ósk Hauksdóttir.
Aðrir sem sitja fund: Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, Elvý Guðríður Hreinsdóttir, skólastjóri Krílakots, Valgerður Inga Júlíusardóttir, aðstoðarskólastjóri Krílakots og Una Dan Pálmadóttir, fulltrúi starfsfólks.
Dagskrá
1.
Skimanir í grunnskóla
Gunnhildur Birnisdóttir, verkefnastjóri í sérkennslu, fer yfir skimanir í Dalvíkurskóla og hvernig unnið er úr niðurstöðum.
Fjölskylduráð þakkar Gunnhildi fyrir góða kynningu á hvernig skimunum er háttað í Dalvíkurskóla og hvernig unnið er úr niðurstöðum.
Gunnhildur fór af fundi kl. 08:35
2.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Tekið fyrir Minnisblað frá deildarstjóra Eigna - og framkvæmdadeildar.
Friðrik fór af fundi kl 08:45
3.
Endurskoðun á innritunarreglum í leikskóla
Elvý Guðríður Hreinsdóttir, fer yfir endurskoðaðar innritunarreglur fyrir leikskóla í Dalvíkurbyggð.
Leikskólafólk kom inn á fund kl 08:45
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum inritunarreglur inn í leikskóla í Dalvíkurbyggð.
4.
Íþróttmaður Dalvíkurbyggðar - reglur og uppfærsla þeirra
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar, fer yfir reglur og framkvæmd varðandi val á Íþróttamanni Dalvíkurbyggðar.
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi kom inn á fund kl. 09:00
Lagt fram til kynningar
5.
Gull- silfur- og bronsmerki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta
Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar, fer yfir reglur og framkvæmd varðandi Gull - silfur - og brons merki Dalvíkurbyggðar fyrir starf í þágu íþrótta.
Lagt fram til kynningar
Jón Stefán Jónsson fer af fundi kl. 09:30
6.
Fjöldahjálpastöðvar á Norðurlandi
Lagt er fram ti kynningar svarbréf frá sveitarstjórn dags. 25. júní 2026 um að Fjöldahjálparstöð í Dalvíkurbyggð verði Dalvíkurskóli.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fundargerðir Farsældaráðs 2026
Fundargerð Farsældarráðs Norðurlands eystra frá 28. október sl. lögð fram til kynningar. Farið var yfir athugasemdir sem bárust við Áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra. Athugasemdirnar snérust um ósamræmi í aðgerðum 2 og 8 um aukið aðgengi að sálfélagslegri þjónustu sem og að ekki var minnst á framhaldsskólana í nokkrum aðgerðum þar sem þeir eiga vel heima þar sem þeir eru á forræði ríkisins en ekki sveitarfélaganna,. Einnig var lagt til að bæta mælikvarða um hlutfall barna sem upplifa öryggi í hverfi eða byggðalagi og fella út tvítekna mælikvarða. Nú í framhaldi af þessari aðgerðaráætlun verður fundum farsældarráðs fækkað í 4 á ári úr mánaðarlegum fundum. Áætlað er að fá ungmennaráð sveitarfélaganna á fundi
Lagt fram til kynningar
8.
Ósk um stuðning við starfsemi Samtaka um karlaathvarf
Tekið fyrir erindi dags. 13.10.2026 frá Samtökum um karlaathvarf. Óskað er eftir stuðningi við nýjan hjálparsíma samtakanna og þá aðstoð sem körlum er veitt í erfiðum aðstæðum. Samtök um karlaathvarf voru stofnuð árið 2018. Þau styðja karla sem búa við ofbeldi í nánum samböndum, karla sem fá ekki að hitta börnin sín og karla sem hafa verið bornir röngum sökum. Starfið gengur út á að miðla upplýsingum og veita stuðning. Mikilvægt er að félagið standi að hagsmunagæslu fyrir karlmenn.
Samtökin hafa nú opnað hjálparsíma fyrir karla. Öll samtöl erutrúnaðarmál. Þangað geta karlar leitað:
- ef þeir búa við líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt eða kynferðislegtofbeldi í nánu sambandi;
- ef þeir fá ekki að hitta börnin sín eða umgengni er tálmuð;
- ef þeir hafa verið bornir röngum sökum og vita ekki hvert þeir eiga aðsnúa sér;
- ef þeir þurfa einfaldlega einhvern til að tala við.
Hjálparsíminn 792-1818
Rannsóknir sýna að karlar eru um helmingur þolenda ofbeldis í nánum samböndum. Þeir leita sér þó síður aðstoðar, meðal annars vegna þess að úrræði hafa verið fá. Hjálparsíminn er fyrsta skrefið. Markmiðið er að geta einnig boðið lögfræði- og sálfræðiaðstoð og síðar húsaskjól fyrir karla sem þurfa að fara af heimili sínu.
Í hvað fer stuðningurinn
- rekstur hjálparsímans og símsvörun;
- ráðgjöf og viðtöl við karla sem til okkar leita;
- aðkeypta lögfræði- og sálfræðiaðstoð fyrir þá sem þurfa;
- fræðslu og kynningu, svo karlar viti að aðstoð er í boði.
Ekki er óskað sérstakar upphæðar heldur hvaða framlagi sem er.

Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að fresta erindi.
9.
Beiðni um fjárstuðning árið 2027
Tekið fyrir erindi dags. 23.09.2026 frá Kvennaathvarfinu á Norðurlandi. Í erindi þeirra kemur fram að í ágúst 2020 opnuðu Samtök um kvennaathvarf neyðarathvarf á Akureyri sem ætlað er konum og börnum þeirra, sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis. Konur og börn dvelja í athvarfinu að kostnaðarlausu og eru þar eins lengi og þörf krefur. Í athvarfinu fá konur og börn frítt fæði og uppihald. Á meðan á dvöl þeirra stendur fá þær m.a. ráðgjöf og hjálp við að tengjast fagaðilum. Í Kvennaatathvarfinu leggjum við okkur stöðugt fram við að þróa og bæta þjónustu við konur og
börn sem hjá okkur dvelja. Auk þess bíður Kvennaathvarfið á Akureyri uppá viðtalsþjónustu fyrir konur sem ekki dvelja í athvarfinu sjálfu. Við þetta bætist fræðsla og stuðningur við starfsfólk sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra auk annarra í sem starfa í framlínunni.
Sveitarfélög eru öflugir stuðningsaðliar kvenna og barna sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis og um leið mikilvægur hlekkur í rekstri Kvennaathvarfsins. Árlega senda Samtök um kvennaathvarf beiðni um styrk til allra sveitarfélaga á landinu en við leitum sérstaklega til sveitarfélaga á
Norðurlandi eystra um áframhaldandi stuðning til þess að standa undir kostnaði vegna húsnæðis á Akureyri.
Hér má sjá áætlaðan kostnað vegna reksturs Kvennaathvarfs á Akureyri fyrir árið 2027:
Launakostnaður 32 mkr.
Húsnæðiskostnaður 4,3 mkr.
Annar rekstrarkostnaður 6 mkr.
Samtals 42,3 mkr.
Ljóst er að sú þjónusta sem Kvennaathvarfið bíður uppá hefur sannað mikilvægi sitt og fest sig í sessi á svæðinu. Það er von okkar að sveitarfélög á Norðurlandi eystra taki þátt í að tryggja áfram framboð á þessari gríðarlega mikilvægu þjónustu. Fyrir hönd Samtaka um kvennaathvarf er hér
með óskað eftir styrk frá sveitarfélögum á Norðurlandi eystra til að mæta húsnæðiskostnaði athvarfsins fyrir árið 2027, alls 4,3 milljónir króna.
Hlutur Dalvíkurbyggðar er 256.301 krónar og var gert ráð fyrir því við gerð fjárhagsáætlunar árið 2027

10.
Fjárhagslegur stuðningur vegna áskriftarkostnaðar sem fellur til hjá sveitarfélögum við samræmda grunnskráningu í þjónustukerfum fyrir stuðnings- og stoðþjónustu
Tekið fyrir erindi dags. 04.11.2026 frá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga en unnið er sameiginlega að því að hrinda í framkvæmd framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamála í félagsþjónustum sveitarfélaga. Unnið er samkvæmt aðgerðaráætlun sem miðar að því að helstu markmið framtíðarsýnarinnar náist fyrir árslok 2028. Samræmd grunnskráning félagsþjónustu felur í sér að innleiða samræmda skráningu grunngagna um lögbundna félagsþjónustu sveitarfélaga og tryggja að gögn verði aðgengileg fyrir yfirlit og tölfræðivinnslu á landsvísu. Til að styðja sveitarfélög við þessa innleiðingu mun félags- og húsnæðismálaráðneytið og jöfnunarsjóður sveitarfélaga veita fjárhagslegan stuðning til að mæta áskriftarkostnaði sem fellur til hjá sveitarfélögunum vegna þjónustukerfa fyrir stuðnings- og stoðþjónustu. Stuðningurinn er veittur til ársloka 2028 og er háður því að sveitarfélög innleiði viðeigandi þjónustukerfi.
Lagt fram til kynningar
11.
Reglugerð um innra eftirlit félagsþjónustu
Lagt fram til kynningar erindi frá Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV). Kynnt er reglugerð um innra eftirlit veitenda félagslegrar velferðarþjónustu nr. 818/2026 sem tók gildi þann 16. júlí sl. Reglugerðin gildir um almenna tilhögun innra eftirlits þeirra þjónustuveitenda sem lúta eftirliti GEV. Markmið með reglugerðinni er að þjónustuveitendur sinni eftirliti með eigin starfsemi og þjónustu. Að unnið sé markvisst að umbótum, gæðum og öryggi og dregið úr áhættu. Að starfsemi sé í samræmi við lög, gæðaviðmið, samninga og leiðbeiningar.
Hvert sveitarfélaga skal sinna:
-innra eftirliti,
-eiga gæðahandbók,
-setja fram verklag um meðferð og úrvinnslu kvartana,
-halda skrá um óvænt atvik
-framkvæma úttekir
Hvert sveitarfélaga skal sinna:
-innra eftirliti,
-eiga gæðahandbók,
-setja fram verklag um meðferð og úrvinnslu kvartana,
-halda skrá um óvænt atvik
-framkvæma úttekir
Lagt fram til kynningar
12.
Gjaldskrár 2027
Gjaldskrá Fræðslu - og menningarsviðs lögð fram og minnisblað frá Frístundafulltrúa.
Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá fræðslusviðs.
13.
Heimsókn í stofnanir sem tengjast Fjölskylduráði
Fjölskylduráð fer í heimsókn í íbúakjarna í Lokastig.
Frestað