Fara í efni

Félagsmálaráð

291. fundur
11. nóvember 2025 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon formaður
Magni Þór Óskarsson varaformaður
Nimnual Khakhlong aðalmaður
Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Beiðni um aðstoð v. greiðslu leikskólagjalda
Málsnúmer 202511052
Bessi Víðisson vék af fundi vegna vanhæfis kl 8:20Trúðnaðarmál - 202511052Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Tómstundastarf eldri borgara í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202506035
Bessi Víðisson kom inn á fund kl 8:24Tekinn fyrir aftur drög að samningi við Dalbæ um tómstundastarf eldri bogara og öryrkja í Dalvíkurbyggð.
Félagsmálaráð samþykkir samninginn við Dalbæ um tómstundastarf eldri borgara og öryrkja í Dalvíkurbyggð með fimm greiddum atkvæðum og vísar samningnum til sveitarstjórnar.
3.
Styrkbeiðni Fjölskylduþjónustu Norðurlands eystra
Málsnúmer 202510051
Tekið fyrir erindi frá Fjölskylduþjónustu Norðurlands eystra dags. 31.10.2025. Málið var einnig tekið fyrir á fundi Byggðaráðs fundi nr. 1165. Þar var bókað að Byggðaráð samþykki samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreidnu erindi til umfjöllunar í félagsmálaráði og fræðsluráði.Forsaga málsins er sú að sveitarfélögum á landinu gátu sótt um styrki frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu í þágu farsældar barna. Sveitarfélög á Norðurlandi eystra sendu frá þér umsóknir en einnig eina sameiginlega sem er meðferðarúrræði með vinnuheitið Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystri. Það verkefni fékk veglegan styrk eða alls 70.000.000 kr. En í áætlun með verkefninu er gert ráð fyrir kostnaði upp á 90.000.000. Þar af leiðandi er hlutur Dalvíkurbyggðar 995.000 kr. Markmið verkefnisins er aða efla farsæld barna og fjölskyldna þeirra með samþættum og snemmtækum stuðningi.
Félagsmálaráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum og hlutur Dalvíkurbyggðar verði greiddur af 02-80-9145.
4.
Alþjóðadagur fatlaðs fólks
Málsnúmer 202511051
Lagt fram til kynningar rafpóstur dagsettur 6.nóvember sl. frá Öryrkjabandalagi Íslands varðandi Alþjóðadag fatlaðs fólks um réttindarbaráttu sem er þann 3.desember nk. Með þessum rafpósti er ÖBÍ að athuga hvort Dalvíkurbyggð vilji taka þátt í þessum degi og lýsa upp byggingar í sveitarfélaginu með fjólubláu ljósi frá 29.nóvember til 5.desember næstkomandi og leggja þannig þessari mikilvægu baráttu lið.
Félagsmálaráð hvetur stofnanir sveitarfélagsins og einstaklinga að taka þátt í verkefninu og lýsa upp húsin sín með fjólubláu ljósi vikuna 29.nóvember til 5.desember og leggja verkefninu lið.
5.
Jafnaðartaxtar NPA samninga fyrir árið 2026
Málsnúmer 202511048
Tekið fyrir rafpóstur frá NPA miðstöðinni dagsett 6.nóvember sl. þar sem búið er að reikna út jafnaðartaxta fyrir árið 2026. Jafnaðartaxtarnir taka gildi frá 1.janúar til 31.desember 2026. Taxtarnir eru eftirfarandi: Jafnaðartaxti NPA sólarhringssamninga án hvíldarvakta: 10.034 kr. (grænn taxti) Jafnaðartaxti NPA sólarhringssamninga með hvíldarvöktum: 8.956 kr. (gulur taxti) Jafnaðartaxti NPA samninga án næturvakta: 9.212 kr. (blár taxti) Jafnaðartaxti aðstoðarverkstjórnar í NPA: 11.700 kr. (bleikur taxti)Dalvíkurbyggð fer eftir bláa taxtanum sem er hækkun um 1095,- krónur á milli ára.
Lagt fram til kynningar.
6.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Málsnúmer 202302116
Óskað er umsagnar um tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar sem er í kynningu til 11.nóvember nk. Gögn málsins má nálgast hér:https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264
Lagt fram til kynningar.
6.
Lýðræðisleg þátttaka innflytjenda - kynning og boð um þátttöku í verkefninu
Málsnúmer 202511006
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 28.10.2025 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um Lýðræðsþátttöku innflytjenda.
7.
Heimsókn á Dalbæ
Málsnúmer 202511068
Félagsmálaráð fór í vettvangsheimsókn á Dalbæ.
Félagsmálaráð þakkar Elísu fyrir góðar móttökur og ánægjulega yfirferð á starfsemi Dalbæjar og tómstundastarfi.