Félagsmálaráð
287. fundur
10. júní 2025
kl.
08:15
-
10:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Auður Olga Arnarsdóttir
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
varamaður
Benedikt Snær Magnússon
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2023-2024
Tekið fyrir erindi dags. 09.04.2025 frá Stjórnarráði Íslands. Þar kemur fram að Innviðaráðherra hafi samþykkt breytingu á reglugerð 280/2021 um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem heimilar sjóðnum að úthluta allt að 464 m.kr. til úrbóta á aðgegnismálum fatlaðs fólks á árunum 2025 og 2026.
Lagt fram til kynningar.
2.
Gagnaöflun um breytingar á skipun í nefndir og ráð sveitarfélaga
Tekið fyrir erindi frá Jafnréttisstofu dags. 21.05.2025 þar sem óskað er eftir uppfærðri tölfræði á skipun í ráð og nefndir svetiarfélagsins. Uppfylli sveitarfélög ekki kröfur 28.gr.laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal færa fyrir því rök í svarpóstinum.
Félagsmálaráð fór yfir lista nefndarmanna í nefndum og ráðum Dalvíkurbyggðar. Í heildina er kynjahlutfallið ásættanlegt, mætti vera betra í einstaka ráðum. Í upphafi kjörtímabils var kynjahlutfall í lagi en með brottfalli einstakra kjörinna fulltrúa hefur hlutfallið aðeins raskast og má rekja það til þess að erfitt hefur verið að manna í nefndir og ráð. Vísað til staðfestingar í sveitastjórn.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Tekið fyrir erindi frá Byggðaráði 1147 fundi. Þar var til umræðu vinna við starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2026-2029. Samþykkt var fjárhagsáætlunaferli Dalvíkurbyggðar.Fyrstu skref eru: a) Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslum, forgangsröðun og stefnu. b) Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat og tímaramma. c) Ákvörðun um markmið fjárhagsáætlunar og stefna sett. d) Tillaga að auglýsingu vegna erinda. e) Rafrænar kannanir. f) Tímarammi fjárhagsáætlunar.g) Fundur sveitarstjóra og stjórnenda fagsviða með kjörnum fulltrúum til að fara yfir verkefni, stefnu og áherslur í fjárhagsáætlunarvinnunni. h) Þjónustustefnan. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
4.
Barnaverndarþjónusta
Lagt fram til kynningar erindi Dalvíkurbyggðar til Akureyrarbæjar þar sem óskað er eftir eftir þvi við Barnaverndarþjónustu Norðurlands að hefja samningaviðræður þess efnis að Dalvíkurbyggð gangi inn í Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra.
Lagt fram til kynningar.
5.
Handavinnustarfið
Tekið til umræðu samantekt á handavinnustarfi á Dalbæ fyrir árið 2024 - 2025, framtíðaráætlanir og skipulag. Stjórn Dalbæjar hefur einnig óskað eftir fundi til að ræða framtíðaráætlanir
Monika Margrét Stefánsdóttir vék af fundi kl 9:03 vegna vanhæfis.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að óska eftir fundi með stjórn félags eldri borgara og stjórn Dalbæjar. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.
Monika Margrét Stefánsdóttir kom aftur inn á fund kl 9:35.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að óska eftir fundi með stjórn félags eldri borgara og stjórn Dalbæjar. Málið verður tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.
Monika Margrét Stefánsdóttir kom aftur inn á fund kl 9:35.
6.
Fjárhagsáætlun 2025
Farið var yfir fjárhagsstöðu sviðsins 2025 auk stöðumats janúar - apríl 2025
Lagt fram til kynningar.
7.
Umsókn frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna
Lagt fram til kynningar að Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki til verkefna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í áætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Því er sérstök áhersla lögð á verkefni sem er ætlað að sporni gegn ofbeldi meðal barna. Starfsmenn félagsmálasviðs og starfsmenn Fræðslu- og menningarsviðs eru að vinna að umsókn í sameiningu.
Lagt fram til kynningar.
8.
Raunkostnaður við málefni fatlaðs fólks 2023 og 2024
Lagt fram til kynningar skjal um raunkostnað sveitarfélagsins vegna málefna fatlaðs fólks árið 2023 og 2024.
Lagt fram til kynningar.