Félagsmálaráð
284. fundur
10. desember 2024
kl.
08:15
-
09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
formaður
Magni Þór Óskarsson
varaformaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Nimnual Khakhlong
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúðnaðarmál - 202412032Bókað í trúnaðarmálabók
Félagsmálaráð samþykkir með 5 greiddum atkvæðum að fela starfsmönnum félagsmálasviðs að veita þeim einstaklingum sem voru of seinir að sækja um jólaaðstoð í Velferðarsjóð Eyjafjarðar styrk. Taka skal mið að upphæðum Velferðarsjóðsins.
2.
Styrkur v. jólaaðstoðar fyrir efnaminni fjölskyldur og einstaklinga - 2024
Tekið fyrir erindi dags. 18.11.2024 frá Velferðarsjóði Eyjafjarðar. Fram kemur í erindi þeirra að um þessar mundir sé sjóðurinn að hefja fjáröflun vegna jólaaðstoðar á vegum Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins. Í ár megi búast við enn fleiri umsóknum fyrir jólin líkt og síðustu ár. Í reglubundnum úthlutun sjóðsins árið 2024 er ljóst að þörfin og eftirspurn hefur stóraukist. Framundan eru þungir mánuðir fyrir mörg heimili á svæðinu og ljóst að gera má ráð fyrir að jólaastoð 2024 verði stórt verkefni. Árið 2023 fengu 500 fjölskyldur og einstaklingar jólaaðstoð. Í ár hafa mánaðarlegar úthlutanir verið samtals 575 og þá er jólaaðstoðin ótalin. Velferðarsjóðurinn hefur stefnt að því að úthluta fyrst og fremst úttektarkortum.
Félagsmálaráð samþykkir með 5 greiddum atkvæðum að veita styrk til Velferðarsjóðs Eyjafjarðar að upphæð 350.000,- kr tekið af lið 02-11-9110.
3.
Barnaverndarþjónusta
Lagt fram til upplýsingar staðan á samningi við Akureyrarbæ vegna Barnaverndarþjónustu. Akureyrarbær hefur sagt upp samningi við Dalvíkurbyggð mun sú uppsögn taka gildi 30.nóvember 2025.
Lagt fram til kynningar.
3.
Endurskoðun húsnæðisáætlunar; stafræn húsnæðisáætlun
Tekið fyrir erindi dags. 20.09.2024 frá HMS en undanfarin ár hefur HMS verið í samstarfi við sveitarfélög um endurskoðu og uppfærslu stafrænna húsnæðisáætlana og er komið að endurskoðun fyrir árið 2025. Slíkar áætlanir eru gerðar til 10 ára í senn en koma til endurskoðunar ár hvert og skulu staðfestar af sveitarstjórn. Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga er gríðarlega mikilvægt og gefur mynd og yfirsýn allra aðila á húsnæðismarkaði og í ákvarðanatöku stjórnvalda þegar kemur að húsnæðisstuðingi hins opinbera. Húsnæðisáætlun er í vinnslu hjá Dalvíkurbyggð.
4.
Framlag ríkisins 2024 vegna barna með fjölþættan vanda og eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis á árinu 2024
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 04.12.2024 frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þar kemur fram að áformað er að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð hafa verið utan heimilis árið 2024 á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Um er að ræða einskiptisaðgerð vegna ársins 2024.
Lagt fram til kynninar.