Félagsmálaráð
271. fundur
12. september 2023
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Kristinsdóttir
formaður
Magni Þór Óskarsson
varaformaður
Nimnual Khakhlong
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202306157Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202309038Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202309037Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202309059Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202309060Bókað í trúnaðarmálabók
6.
Uppfæra, stefnu og framkvæmdaáætlun undir barnavernd, heimasíða
Tekin fyrir stefna Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar fyrir tímabilið 2023-2027. Stefna og framkvæmdaáætlun Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar er gerð með vísan til 9.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 en í 9.gr. kemur fram: Sveitarstjórnir skulu marka sér stefnu og gera framkvæmdaáætlun fyrir hvert kjörtímabilá sviði barnaverndar innan sveitarfélagsins. Framkvæmdaáætlun sveitarfélags íbarnaverndarmálum skal send mennta- og barnamálaráðuneytinu, Gæða- ogeftirlitsstofnun velferðarmála og Barna- og fjölskyldustofu.“
Lagt fram til kynningar.
7.
Barnaverndarþjónusta
Tekið fyrir minnisblað frá fundi fagráðs Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar dags. 31.08.2023. Um er að ræða álit og mat á samstarfi Akureyarbæjar og Dalvíkurbyggðar sbr. fyrirliggjandi samning um Barnaverndarþjónustu Eyjafjarðar sem endurskoðaður skal fyrir árslok 2023, ,eð vísan í 6. og 8. grein samningsins.
Lagt fram til kynningar.
8.
Jafnréttisáætlun 2022-2026
Tekinn fyrir rafpóstur frá Jafnréttisstofu dags. 31. ágúst 2023 þar sem farið var yfir drög að jafnréttisáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árin 2023-2026. Gerðar voru 3 athugasemdir við drögin sem snéru af því að vísa í lagagreinar hvað varðar hinsegin fræðslu og meðferð við ráðstöfun fjármagns.
Félagsmálaráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum Jafnréttisstefnu Dalvíkurbyggðar með þar til gerðum breytingum.
9.
Fjárhagsáætlun 2024
Farið yfir tímaramma fjárhagsáætlunar 2024. Einnig var starfsáætlun ársins 2023 skoðuð og farið yfir áherslur nefndarmanna vegna fjárhagsáætlunar ársins 2024. Lagt til að boða til aukafundar vegna vinnu við fjárhagsáætlun.
Lagt fram til kynningar og samþykkt að eiga auka fund vegna vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2024.
10.
Gjaldskrár 2024
Teknar fyrir gjaldskrá sviðsins fyrir árið 2023 og rætt var um breytingar á gjaldskrá fyrir árið 2024.
Félagsmálaráð mun taka gjaldskrár sviðsins til frekari umfjöllunar á auka fundi vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.
11.
Beiðni um framlag til starfsemi Stígamóta 2024
Tekið fyrir erindi dags. 30.08.2023 frá Stígamótum. Árlega leita Stígamót til allra sveitarstjórna til þess að óska eftir fjárstuðningi og samstarfi um reksturinn. Árið 2022 leituðu 910 einstaklingar til Stígamóta. Um helmingur þeirra sem nýta sér þjónustuna á hverju ári búa utan Reykjavíkur - ekki er þó boðið upp á viðtöl á landsbyggðinni.
Félagsmálaráð hafnar erindinu með fimm greiddum atkvæðum en mun styrkja Aflið á Akureyri, systrafélag Stígamóta.
12.
Breytt fyrirkomulag forvarna hjá embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra
Tekin fyrir rafpóstur frá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra dags. 05.09.2023Í erindi hennar kemur fram að staða forvarnarfulltrúa við lögregluembættið verður ekki með sama sniði og verið hefur frá og með 1. september. Embættinu var gert að skera niður og staða forvarafulltrúa er því miður eitt af þeim verkefnum sem hverfa við það. Áfram mun lögreglan sinna forvarnarverkefnum en stilla þarf þeim upp með öðrum hætti.
Félagsmálaráði þykir miður að staða forvarnarfulltrúa hafi verið lögð niður, þar sem félagsmálaráð telur mikla þörf fyrir aukið forvarnarstarf. Starf forvarnarfulltrúa hefur reynst mjög vel og hefur eftirfylgni fulltúans verið til fyrirmyndar.
13.
Framlag ríkisins 2023 vegna barna með fjölþættan vanda ogeða miklar þroska- og geðraskanir
Tekin fyrir rafpóstur dags. 01.09.2023 frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Þar kemur fram að áformað er að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð hafa verið utan heimilis árið 2023 á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Um er að ræða einskiptisaðgerðir vegna ársins 2023
Lagt fram til kynningar.
14.
Framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2023-2024
Tekið fyrir erindi dags. 05.09.2023 frá Innviðaráðuneytinu. Samþykkt hefur verið að gera breytingu á reglugerð 280/2021 um starfsemi Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem heimilar sjóðnum að úthluta allt að 415 m.kr. til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks á árunum 2023 og 2024. Umsóknir um aðgengisframlög úr Fasteignasjóði skulu berast sjóðnum ásamt fylgigögnum eigi síðar en 31. desember 2024. Meðfylgjandi er yfirlit yfir skiptingu fjármagns sem heimilt er til úthlutunar innan hvers þjónustusvæðis.
Félagsmálaráð felur starfshópi um aðgengismál fatlaðra í sveitafélaginu að sækja um aðgengisframlag úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
15.
Fjárhagsáætlun 2023
Farið var yfir fjárhagsstöðu félagsmálasviðs fyrir árið 2023
Lagt fram til kynningar.