Fara í efni

Félagsmálaráð

269. fundur
9. maí 2023 kl. 08:15 - 09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Kristinsdóttir formaður
Magni Þór Óskarsson varaformaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Nimnual Khakhlong aðalmaður
Felix Rafn Felixson varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir starfsmaður
Sjöfn Ólafsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Skipun í nefndir og ráð
Málsnúmer 202301073
Tekið fyrir erindi dags. 25.04.2023 frá Jafnréttisstofu. Á grundvelli 4.gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismála kallaði jafnréttisstofa eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um skipun í nefndir. Niðurstöður könnunar má finna á heimasíðu Jafnréttisstofu.
Lagt fram til kynningar.
2.
Til umsagnar 922. mál frá nefndasviði Alþingis
Málsnúmer 202304128
Tekið fyrir erindi dags. 26.04.2023 frá nefndarsviði Alþingis. Allherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum i þágu barna (samþætting þjónustu o.fl.), 922. mál
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Málsnúmer 202304162
Tekið fyrir erindi frá Byggðarráði dags. 04.05.2023 um fjárhagsáætlun 2025-2027Niðurstaða bóka ráðsins voru:b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun.c) Byggðaráð beinir því til fagráða að taka til umfjöllunar vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun á næsta fundi.
Lagt fram til kynningar.
4.
Jafnréttisáætlun 2022-2026
Málsnúmer 202206106
Tekin fyrir frá síðasta fundi drög að jafnréttisáætlun Dalvíkurbyggðar 2023-2026
Félagsmálaráð samþykkir samhljóða með fimm greiddum atkvæðum Jafnréttis- og mannréttindastefnu Dalvíkurbyggðar 2023-2026. Starfsmönnum falið að senda stefnuna til Jafnréttisstofu til yfirlestrar.