Félagsmálaráð
268. fundur
25. apríl 2023
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Kristinsdóttir
formaður
Magni Þór Óskarsson
varaformaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Felix Rafn Felixson
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir
Sviðsstjóri félagsmálasviðs
Dagskrá
1.
Húsnæðismál
Trúnaðarmál - 202212059Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202301144Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202302001Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202303061Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Jafnréttisáætlun 2022-2026
Á síðasta fundi félagsmálaráðs sem haldinn var þann 21. mars 2023 var farið yfir drög að jafnréttisáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir tímabilið 2023-2026. Starfsmönnum var falið að vinna aðgerðaráætlun og setja inn í jafnréttisáætlun. Farið var yfir áætlunina og aðgerðaráætlun.
Félagsmálaráð felur sviðsstjóra félagsmálasviðs að vinna að breytingum sem lagðar voru fram á fundinum. Tekið aftur fyrir á næsta fundi.
6.
Hjólasöfnun 2023
Tekið fyrir erindi dags. 04.04.2023 frá Barnaheill. Árleg hjólasöfnun er hafin í tólfta sinn. Frá upphafi hjólasöfnunar árið 2012 hafa um 3.500 börn og ungmenni notið góðs af því að fá hjól úr söfnuninni. Barnaheill býður öllum félagsþjónustum og/eða barnavernd sveitarfélaganna að taka þátt í verkefninu með þeim og gera þannig skjólstæðingum upp að 18 ára aldri, allra sveitarfélaga kleift að sækja um hjól úr söfnuninni búi þau við þannig félagslegar og/eða fjárhagslegar aðstæður að þau þurfi á hjólum að halda. Hjólunum verður úthlutað frá miðjum apríl og fram í maí.
Félagsmálaráð felur sviðsstjóra að kynna verkefnið á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og aðstoða fólk sem gæti nýtt sér úrræðið að sækja um.
7.
Til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 531972
Tekið fyrir erindi dags. 09.03.2023 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis. Allsherjar- og menntamáladeild Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra nr. 53/1972 með síðari breytingum, 165. mál.
Lagt fram til kynningar.
8.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs), 782. mál
Tekið fyrir erindi dags. 14.03.2023 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustusvöðvar). 782. mál.
Lagt fram til kynningar.
9.
Tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál
Tekið fyrir erindi dags. 09.03.2023 frá nefndarsviði Alþingis. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 126. mál.
Lagt fram til kynningar.
10.
Til umsagnar 860. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Tekið fyrir erindi dags. 31.03.2023 frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024-2028, 860. mál.
Lagt fram til kynningar.
11.
Orlof húsmæðra 2023
Tekið fyrir erindi dags. 21.04.2023 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, um orlof húsmæðra árið 2023. Samkvæmt upplýsingum frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu skal framlag sveitarfélaga til orlofsnefnda á hverju svæði vera minnst kr. 141.01 fyrir hvern íbúa.
Lagt fram til kynningar.