Fara í efni

Félagsmálaráð

258. fundur
10. maí 2022 kl. 08:15 - 09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Haukur Gunnarsson
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Áætlun um jafnréttismál - endurskoðun að afloknum sveitarstjórnarkosningum
Málsnúmer 202203025
Félagsmálastjóri lagði fram erindi til að minna á að sveitarstjórnir skulu að afloknum sveitarstjórnarkosningum sjá til þess að innan hvers sveitarfélags verði gerð áætlun fyrir nýtt kjörtímabil um markmið og aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun sbr. lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, lög um jafna meðferð á vinnumarkaði og lög um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, þar sem m.a. komi fram hvernig unnið skuli að kynja- og jafnréttissjónarmiðum á öllum sviðum. Áætlun skal taka til markmiða og aðgerða til að stuðla að jafnrétti og jafnri meðferð við ráðstöfun fjármagns, í þjónustu sveitarfélagsins og starfsmannamálum, m.a. hvernig starfsfólki skuli tryggð þau réttindi sem kveðið er á um í 6. mgr. 14. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Hún skal lögð fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn eigi síðar en ári eftir sveitarstjórnarkosningar, framvinda hennar rædd árlega í sveitarstjórn eftir það og hún endurskoðuð eftir þörfum.Sveitarstjórn skal fela byggðaráði eða annarri fastanefnd sveitarfélags að fara með jafnréttismál sveitarfélagsins og hafa, með stuðningi starfsfólks, umsjón með undirbúningi áætlunar og framkvæmd hennar.Sveitarstjórn er jafnframt skylt að gera jafnréttisáætlun eða samþætta jafnréttissjónarmið í starfsmannastefnu sína skv. 5. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.Jafnréttisstofa hefur eftirlit með framkvæmd þessa ákvæðis og veitir sveitarfélögum stuðning við framkvæmd þess.
Lagt fram til kynningar.
2.
Vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu
Málsnúmer 202205068
Tekið fyrir erindi dags. 06.05.2022 frá mennta- og barnamálaráðherra til sveitarfélaga um stuðning vegna móttöku barna á flótta frá Úkraínu. Ráðuneytið hefur ákveðið að veita tímabundinn fjárhagslegan stuðning til sveitarfélaga þar sem börn á flótta frá Úkraínu og fjölskyldur þeirra verða með búsetu til að styðja við móttöku, undirbúning á skólastarfi og virka þáttöku barnanna. Stuðningnum er ætlað að styðja við náms- og félagsleg úrræði sveitarfélaga fram að skólabyrjun haustið 2022. Nánari upplýsingar verða sendar sveitarfélögunum á næstum vikum.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum sviðsins að sækja um styrki til að styðja við þau börn sem hingað eru komin.
3.
Römpum upp Ísland
Málsnúmer 202203168
Tekið fyrir erindi dags. 28.03.2022 frá Óskari Helga Þorleifssyni um verkefnið Römpum upp Ísland. Markmiðið með Römpum upp Ísland er að auka aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum á Íslandi. Stofnunin styrkir einkaaðila til að koma upp römpum eða annars konar lausnum við innganga sína og tryggja þannig að fólk með hreyfihömlun hafi aðgengi að þeirri þjónustu sem þar stendur til boða. Gert er ráð fyrir að verkefnið taki 4 ár. Erindi þetta var einnig tekið fyrir í Byggðaráði fundi 1.023 þar sem byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til félagsmálaráðs, umhverfisráðs og framkvæmdastjórnar.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum sviðsins að senda bréf til fyrirtækja í sveitarfélaginu til að kynna þetta frábæra verkefni og hvetja til þátttöku.
4.
Aukið félagsstarf fullorðinna árið 2022 vegna Covid-19
Málsnúmer 202205055
Tekið fyrir erindi dags. 02.05.2022 frá Félags- og vinnumarkaðsráðherra sem hvetur sveitarfélög til að efla félagsstarf fullorðinna á árinu 2022, með það að markmiði að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19. Gert er ráð fyrir að hvert sveitarfélag geti sótt um 1.200 kr. fyrir hvern íbúa í sveitarfélaginu sem er 67 ára og eldri. Umsóknarfrestur er til 17. maí 2022
Félagsmálaráð felur starfsmönnum sviðsins að sækja um styrk í samvinnu við íþrótta- og æskulýðsfulltrúa sveitarfélagsins.
5.
Brotthvarf úr framhaldsskólum
Málsnúmer 202205070
Tekið fyrir erindi dags. 06.05.2022 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga. Velferðarvaktin hefur fjallað um rannsóknarskýrsluna Félagsleg og efnahagsleg staða og brotthvarf úr íslenskum framhaldsskólum, sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið komu að og Velferðarvaktin gaf út í janúar sl. Tillögur um úrbætur komu frá Velferðarvaktinni og sendir sambandið fyrrgreinda skýrslu til sveitarfélaganna.
Lagt fram til kynningar.
6.
Orlof húsmæðra
Málsnúmer 202205069
Tekið fyrir erindi dags. 06.05.2022 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt upplýsingum frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu skal framlag sveitarfélaga til orlofsnefnda á hverju svæði vera minnst 127.96 fyrir hvern íbúa sveitarfélagsins. Framlag þetta skal greiða orlofsnefnd viðkomandi orlofssvæðis fyrir 15. maí nk. sbr. 5. gr. laga nr. 53/1972
Lagt fram til kynningar.
7.
Ósk um upplýsingar frá sveitarfélögum, vegna fyrirspurnar frá Alþingi til félags- og vinnumarkaðsráðherra
Málsnúmer 202204067
Tekið fyrir erindi dags. 13.04.2022 frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu sem hafði borist fyrirspurn frá Alþingi í tengslum við lög um orlof húsmæðra, nr. 53/1972. Óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum sem komið geta að gagni í svari ráðherra við fyrrnefndri fyrirspurn. Í því sambandi er meðal annars vísað til 11. gr. laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, þar sem kveðið er á um að orlofsnefndum sé skylt að senda ráðuneytinu árlega skýrslu um starfsemi sína.
Lagt fram til kynningar.
8.
Konur gára vatnið - ráðstefna
Málsnúmer 202205072
Tekið fyrir erindi dags. 06.05.2022 frá Jafnréttisstofu. Boðið er til ráðstefnu; Konur gára vatnið, ráðstefna um kynjajafnrétti í stjórnun. Ráðstefnan er haldin í Hofi, miðvikudaginn 11. maí 2022
Lagt fram til kynningar.
9.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu í þágu barna, snemmtækur stuðningur) 530. mál
Málsnúmer 202205056
Tekið fyrir erindi dags. 02.05.2022 frá Velferðarnefnd Alþingis. Sent er til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu í þágu barna, snemmtækur stuðningur), 530. mál.
Lagt fram til kynningar.
10.
Til umsagnar frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga (einstaklingar sem flytjast til innan viskiptafyrirtækis), 482. mál
Málsnúmer 202205071
Tekið fyrir erindi dags. 06.05.2022 frá Velferðarnefnd Alþingis. Sent er til umsagnar frumvarp til laga um atvinnuréttindi útlendinga (einstaklingar sem flytjast til innan viðskiptafyrirtækis), 482. mál.
Lagt fram til kynningar.