Félagsmálaráð
256. fundur
8. febrúar 2022
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir
formaður
Felix Jósafatsson
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Haukur Gunnarsson
1. varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Beiðni um heimilisþjónustu jan 2022
Trúnaðarmál - 202201026Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202202026Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202202024Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Hækkun á matarbökkum frá Dalbæ
Tekið fyrir erindi frá forstjóra Dalbæjar, Elísu Rán Ingvarsdóttur, dags. 01.02.2022Stjórn Dalbæjar samþykkti á fundi sínum í desember að gerðar yrðu nauðsynlegar verðskrárhækkanir á seldu fæði. Stök hádegismáltíð hefur lengi kostað 780 kr. en mun nú frá 1. febrúar 2022 kosta 900 kr.
Lagt fram til kynningar.
5.
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 20. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 25.01.2022 frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Þar er óskað umsagnar um tillögur til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 20. mál
Lagt fram til kynningar.
6.
Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis
Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla uppbyggingarteymis félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19 dags. 21.01.2022. Í skýrslunni kemur fram að í gegnum heimsfaraldurinn hafa sveitarfélög og starfsfólk í velferðarþjónustu sýnt mikla útsjónarsemi, sveigjanleika og fagleg vinnubrögð þegar upp hafa komið áskoranir sem lúta að sóttvörnum, smitum, mönnunarvanda og ýmsu fleiru. Sveitarfélögin reka sólarhringsþjónustur sem ekki er hægt að loka eða senda íbúa annað þótt starfsfólk og íbúar lendi í einangrun eða sóttkví. Í ljósi þessa ákvað sérstakt viðbragðs- og uppbyggingarteymi félagsmálaráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga að senda út spurningalista til allra sveitarfélaga til að fá betri mynd af þeim áskorunum sem faraldurinn er að valda. Víða er ástandið erfitt, þurft hefur að skerða þjónustu víða s.s. liðveisla, félagsstarf aldraðra, heimaþjónusta, dvöl í skammtímavistun o.fl. Lífsnauðsynleg þjónusta hefur verið varin til hins ýtrasta.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fjárhagsáætlun 2022
Farið var yfir fjárhagsáætlun ársins 2022 sem og niðurstöður ársins 2021
Lagt fram til kynningar.