Félagsmálaráð
254. fundur
19. október 2021
kl.
16:15
-
18:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir
formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
varaformaður
Gunnar Eiríksson
aðalmaður
Felix Jósafatsson
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202110016Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202107081Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 202110031Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Gjaldskrár árið 2022
Lagðar voru fram gjaldskrár félagsmálasviðs fyrir árið 2022 til yfirferðar.
Félagsmálaráð samþykkir gjaldskrár félagsmálasviðs fyrir árið 2022 með fimm greiddum atkvæðum.
5.
Fjárhagsáætlun 2022
Lagðar voru fyrir fjárhagsáætlun og starfsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2022.
Félagsmálaráð samþykkir fjárhagsáætlun og starfsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2022 með fimm greiddum atkvæðum.
6.
Beiðni um rekstarstyrk fyrir árið 2022
Tekin fyrir umsókn um rekstarstyrk fyrir árið 2022 frá Kvennaathvarfinu í Reykjavík dagsett 6. október 2021. Óskað er eftir rekstarstyrk fyrir árið 2022 að fjárhæð kr. 100.000,-, þar sem sveitarfélög hafa hingað til verið öflugir stuðningsaðilar kvenna og barna sem sækja skjól til Samtaka um kvennaathvarf.
Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið, tekið af lið 02-80-9145.
7.
Innköllun um, sanngirnisbætur - til upplýsinga
Lagt fram rafbréf dags. 6. október 2021 frá Dómsmálaráðuneytinu. Með bréfinu vill dómsmálaráðuneytið vekja athygli stjórnenda í málefnum fatlaðs fólks á því að innköllun krafna um sanngirnisbætur verður birt í Lögbirtingarblaðinu 7. okt sl. Frá þeim tíma gefst einstaklingum sem sættu illri meðferð eða ofbeldi á stofnunum fyrir fötluð börn, rekin á vegum hins opinbera fyrir 1. febrúar 1993, tækifæri til að lýsa kröfum sínum um bætur. Fresturinn til að sækja um sanngirnisbætur rennur að óbreyttu út 31. janúar 2022.
Lagt fram til kynningar.