Fara í efni

Félagsmálaráð

248. fundur
9. mars 2021 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir sviðsstjóri
Þórhalla Karlsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Breyting á barnaverndarlögum nr. 80/2002
Málsnúmer 202102136
Lagt fram til kynningar erindi dags. 10.02.2021 frá félagsmálaráðuneytinu um frumvarp til laga um breytingar á barnaverndarlögum nr. 80/2002
Lagt fram til kynningar.
2.
Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög
Málsnúmer 202103014
Lagt fram til kynningar erindi frá Jafnréttisstofu dags. 03.03.21 þar sem kynnt eru tvenn ný lög frá Alþingi sem lúta að jafnréttismálum og leysa af hólmi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr,. 10/2008. Nýju lögin eru annars vegar lög um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 og hins vegar lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.Sveitarfélög skulu eigi síðar en ári eftir sveitarstjórnarkosningar gera áætlun um jafnréttismál og taka til markmiða og aðgerða til að koma í veg fyrir mismunun, ekki eingöngu vegna kyns heldur jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðana, fötlunar o.s.frv. Ekki er kveðið á um skipun sérstakra jafnréttisnefnda heldur skal sveitarstjórn fela byggðarráði eða annarri fastanefnd sveitarfélagsisns að fara með jafnréttismál.
Lagt fram til kynningar.
3.
Betri vinnutími í vaktavinnu
Málsnúmer 202010006
Þroskaþjálfi félagsmálasviðs kynnti fyrir nefndarmönnum áhrif og aukinn kostnað í þjónustu við fatlað fólk með tilkomu betri vinnutíma sem tekur gildi 1. maí nk.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hagstofurskýrsla 2020
Málsnúmer 202103021
Lagt fram til kynningar erindi dags. 16.02.21 frá Hagstofu Íslands þar sem óskað er eftir hagstofuskýrslu félagsmálasviðs fyrir árið 2020 sem og hagstofuskýrslu málefna fatlaðra fyrir árið 2020. Skýrslurnar lagðar fram til kynningar fyrir ráðið.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fjárhagsáætlun 2021
Málsnúmer 202009052
Farið yfir fjárhagsstöðu félagsmálasviðs fyrir árið 2021
Lagt fram til kynningar.
6.
Fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 201908017
Lögð fram til kynningar frávikagreining sviðsstjóra fyrir fjárhagsárið 2020 á félagsmálasviði
Lagt fram til kynningar.
7.
Samningur um dagþjónustu 2020-2023
Málsnúmer 202004066
Farið yfir samning um dagþjónustu í málefnum aldraðra og fyrirhugaða vinnu með Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík um næstu skref.
Lagt fram til kynningar.