Fara í efni

Félagsmálaráð

247. fundur
9. febrúar 2021 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202101117
Trúnaðarmál - 202101117Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202102054
Trúnaðarmál - 202102054Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202102056
Trúnaðarmál - 202102056Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202101019
Trúnaðarmál - 202101019Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Beiðni um upplýsingar um heimilslaust fólk og fólk í húsnæðishraki
Málsnúmer 202101073
Tekið fyrir erindi frá Hagstofu Íslands dags. 12.01.2021 þar sem óskað er eftir upplýsingum um heimilislaust fólk og fólk í húsnæðishraki. Í bréfinu kemur fram að Hagstofan framkvæmi manntal og húsnæðistal hinn 1. janúar ár hvert og er það byggt á skrám í vörslu opinberra aðila. Þar sem heimilislausir eru ekki skráðir í miðlægar stjórnsýsluskrár er hætta á að sá hópur verði útundan. Óskað er eftir upplýsingum um heimilislausa á starfssvæði félagsþjónustunnar.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsmálasviðs að svara erindinu.
6.
Bréf frá félagsmálaráðuneyti - sérfræðingateymi vegna barna með fjölþættan vanda - umsóknarform
Málsnúmer 202101037
Lagt er fram til kynningar rafbréf frá félagsmálaráðuneytinu dags. 12.01.2021. Skipað hefur verið sérfræðingateymi sem skal vera sveitarfélögum til ráðgjafar um viðeigandi þjónustu við börn með alvarlegar þroska- og geðraskanir, sem þurfa á annars konar og meiri þjónustu að halda en unnt er að veita á heimili fjölskyldna þeirra í samræmi við 20.gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018. Áður en leitað er ráðgjafar sérfræðingateymis skal hafa verið gert heildstætt mat á þjónustuþörf barns og einstaklingsbundin þjónustuáætlun.
Lagt fram til kynningar.
7.
Stöðuskýrslur uppbyggingarteymis
Málsnúmer 202009032
Lögð var fram til kynningar stöðuskýrsla frá teymi um uppbyggingu félags- og atvinnumála í kjölfar Covid-19 dags. 28.01.2021.Fram kemur í skýrslunni að almennt atvinnuleysi á Íslandi hafi verið 10,7% í desember. Vanlíðan, kvíði og fjárhagslegar áhyggjur eru þeir þættir sem félagasamtök segja einkenna stóran hóp skjólstæðinga sem til þeirra leita í stuðningsþjónustu. Einnig kemur fram að forráðamenn 34% barna af tekjulágum heimilum sem rétt eiga til sérstakra íþrótta- og tómstundastyrkja hafi athugað rétt sinn hjá island.is
Lagt fram til kynningar.
8.
Myndbönd um réttindi fatlaðra barna af erlendum uppruna
Málsnúmer 202102053
Lagt fram til kynningar erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 15.01.2021 en vakin er athygli á myndböndum sem Landssamtökin Þroskahjálp hafa unnið um réttindi fatlaðra barna og talsett á fjögur tungumál auk íslensku, spænsku, arabísku, pólsku og ensku. Myndböndin urðu til við verkefni unnin með styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála og fól í sér mjög viðtækt samtal um málefni fatlaðra barna af erlendum uppruna. Fram kom á málþingi sem haldið var 2019 að foreldrar fatlaðra barna af erlendum uppruna eru oft ekki nægilega vel upplýst um réttindi barna sinna. Hægt er að sjá myndböndin á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Mánaðarlega skýrslur bókhalds 2021 vs. áætlun fyrir fagráð
Málsnúmer 202102005
Lögð fram til kynningar staða bókhalds félagsmálasviðs fyrir árið 2020 sem og það sem komið er fyrir árið 2021
Lagt fram til kynningar.
10.
Reglur um fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 201502070
Félagsmálastjóri fór yfir reglur um fjárhagsaðstoð Dalvíkurbyggðar og mikilvægi þess að þær verði endurskoðaðar árið 2021.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsmálasviðs að fara yfir reglurnar og leggja fyrir á næsta fundi.