Fara í efni

Félagsmálaráð

241. fundur
11. ágúst 2020 kl. 08:15 - 09:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202008007
Trúnaðarmál - 202008007Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202008008
Trúnaðarmál - 202008008Bókað í trúnaðarmálabók
3.
íþrótta- og tómstundastyrkir til barna á lágtekjuheimilum - praktískar útfærslur
Málsnúmer 202007017
Lagt fram til kynningar rafrænt erindi dags. 15. júní 2020 frá félagsmálaráðuneytinu vegna fundar með félagsmálastjórum varðandi íþrótta- og tómstundastyrkja til barna á lágtekjuheimilin til að tryggja jöfn tækifæri barna til íþrótta- og tómstundastarfs sumarið 2020. Í erindinu kemur fram að styrknum er beint til tekjulágra foreldra eða með lægri tekjur en ella vegna atvinnumissis eða hlutaatvinnuleysisbóta en nýtist jafnframt börnum á heimilum einstæðra foreldra og börnum öryrkja. Skilyrði eru fyrir styrknum og þarf að sækja um hann inná www.island.is þar sem foreldrar eru með lægri tekjur en 740 þúsund á mánuði.
Lagt fram til kynningar.
4.
Afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni með alvarlegan vímuefnavanda á Landsspítala
Málsnúmer 202007018
Lagt fram til kynningar rafrænt erindi dags. 15. júní 2020 frá meðferðasviði Landsspítalans þar sem verið er að kynna fyrir fagfólki afeitrunardeild fyrir ólögráða ungmenni með alvarlegan vímuefnavanda sem tók til starfa 2.júní sl. Deildin er sérhæfð fíknigeðdeild í húsi geðþjónustu Landsspítalans á Hringbraut, 33D.
Lagt fram til kynningar.
5.
Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga og 20 ára afmælisráðstefna
Málsnúmer 202007020
Lagt fram til kynningar boðun á landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga og 20 ára afmælisráðstefnu Jafnréttisstofu sem haldin verður í Hofi á Akureyri dagana 15. og 16. september nk. í samstarfi við Akureyrarbæ, Jafnréttisstofu og Samband íslenskra sveitarfélaga. Dagskrár beggja viðburða og nánari upplýsingar verða sendar út í ágúst.
Lagt fram til kynningar.
6.
Drög að frumvarpi til laga um samþættingu í þágu farsældar barna
Málsnúmer 202007026
Lagt fram til kynningar drög að umsögn sambandsins vegna laga um samþættingu í þágu farsældar barna.
Lagt fram til kynningar.
7.
Samþættingarfrumvarp - frumdrög að umsögn
Málsnúmer 202007019
Lagt fram til kynningar frumdrög að umsögn um samþættingarfrumvarp í þágu farsældar barna frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
8.
Kjaraviðræður við Eflingu/SGS vegna NPA aðstoðarfólks
Málsnúmer 202007030
Tekið fyrir rafrænt erindi dags. 23. júní 2020 frá NPA miðstöðinni varðandi kröfugerð og bréf til sveitarfélaga vegna kjaraviðræðna við Eflingu stéttarfélag. Í meðfylgjandi bréfi óskar NPA miðstöðin eftir því að eiga í samstarfi við þau sveitarfélög sem sjá um umsýslu NPA samninga. NPA miðstöðin hefur sent bréf til allra þeirra sem sjá um umsýslu með upplýsingum um kröfugerð og að NPA miðstöðin hefur hafið viðræður við Eflingu stéttarfélag um nýjan sérkjarasamning fyrir NPA aðstoðarfólk. NPA miðstöðin óskar eftir aðkomu og liðsinni sveitarfélaga í viðræðunum. Óskað er eftir að sveitarfélögin bregðist við bréfinu fyrir 20.júlí nk.
Lagt fram til kynningar.