Félagsmálaráð
238. fundur
10. mars 2020
kl.
08:15
-
10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir
formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
varaformaður
Gunnar Eiríksson
aðalmaður
Felix Jósafatsson
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 202003035Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 202003047Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum (fæðingarstaður og sveitarfélag fyrsta lögheimilis barns), 119. mál
Lagt fram til kynningar erindi sem barst dags. 12. febrúar 2020 frá nefndarsviði Alþingis. Óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á barnalögum nr. 76/2003, með síðari breytingum (fæðingarstaður og sveitarfélag fyrsta lögheimilis barns), 119 mál
Lagt fram til kynningar
4.
Samningur við Þorleif Kr. Níelsson félags- og fjölskylduráðgjafa
Lögð fram drög að samningi við félagsráðgjafa sem sinnir ráðgjöf við starfsmenn félagsþjónustu sem og sinnir málum sem vísað er til hans.
Lagt fram til kynningar.
5.
Tillaga að skipan notendaráðs fatlaðs fólks
Lögð voru fram drög að erindisbréfi fyrir notendaráð fatlaðs fólks
Lagt fram til kynningar.
6.
Ábendingalína Barnaheilla til hjálpar börnum
Tekið fyrir erindi dags. 24. febrúar 2020 frá Barnaheill þar sem kynnt er ný tilkynningasíða Ábendingalínunnar. Tilkynnt er um ofbeldi, tælingu, áreitni eða hvaðeina annað sem er ólöglegt eða óviðeigandi á netinu til þessarar línu. Ábendingarlínan er ætluð bæði börnum og fullorðnum.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ráðstefna Öldrunarráðs
Tekið fyrir erindi dags. 27. febrúar 2020 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem vakin er athygli á ráðstefnu öldrunarráðs sem haldin verður 18. mars n.k.
Lagt fram til kynningar.
8.
Verndarar barna
Tekið fyrir erindi dags. 05.03.2020 frá Barnaheill þar sem fram kemur að á undanförnum árum hafa yfir fjörtíu þúsund manns fengið fræðslu á vegum Verndara barna um leiðir til að vernda börn gegn kynferðisofbeldi. Barnaheill vilja með þessu erindi kynna forvarnarverkefnið Verndarar barna og þá fræðslu sem er í boði fyrir skóla sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fjárhagsáætlun 2020
Lagt fram til kynningar fjárhagsstaða sviðsins frá áramótum til dagsins í dag.
Lagt fram til kynningar.
10.
kórónuveira 19 - viðbrögð félagsþjónustu
Tekið fyrir erindi dags. 06.03.2020 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga sem sent var að beiðni Samhæfingarmiðstöðvar almannavarna. Efni bréfsins var upplýsingar vegna Kórónaveiru COVID-19 sem snýr að velferðarsviði sveitarfélaga. Gripið hefur verið til margvíslegra varúðarráðstafana til að hefta kórónuveiruna. Huga þarf vel að viðkvæmum einstaklingum sem eru í þjónustu velferðarsviða sveitarfélaga bæði í sólarhringsþjónustu og í þjónustu á einkaheimilum. Mikilvægt er að sveitarfélög vinni samkvæmt sinni viðbragðsáætlun sem verður að haldast órofin á öllum almannavarnarstigum. Farið var yfir drög að viðbragðsáætlun félagsþjónustu og hvað nú þegar hefur verið skipulagt.
Lagt fram til kynningar.
11.
Þjónustuíbúðir í Lokastíg
Kynnt var fyrir nefndarmönnum staðan á þjónustuíbúðum í Lokastíg, ráðningarmál og þjónustuþörf einstaklinganna. Í lok fundar fóru nefndarmenn í heimsókn í Lokastíg til að skoða íbúðirnar.
Lagt fram til kynningar.