Fara í efni

Félagsmálaráð

237. fundur
11. febrúar 2020 kl. 08:15 - 09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Heimilisþjónusta
Málsnúmer 202002024
Trúnaðarmál - 202002024Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202002029
Trúnaðarmál 202002029Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202002016
Trúnaðarmál 202002016Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201710075
Trúnaðarmál 201710075Bókað í trúnaðarmálabók
5.
112 dagurinn 2020
Málsnúmer 202002025
Lagt fram erindi dags. 04.02.2020 frá Barnaverndarstofu. Þar er vakin athygli á að 112-dagurinn verður haldinn um allt land 11. febrúar. Sjónum verður að þessu sinni beint sérstaklega að því hvernig við tryggjum öryggi og rétt viðbrögð við slysum og áföllum í umferðinni.
Lagt fram til kynningar.
6.
Hagstofa félagsþjónustu 2020
Málsnúmer 202002026
Tekið fyrir erindi frá Hagstofu Íslands dags. 30.01.2020 en söfnun er hafin á skýrslu sveitarfélaga um félagsþjónustu á árinu 2019
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að vinna skýrsluna.
7.
Félagsþjónustuskýrsla málefna fatlaðra 2020
Málsnúmer 202002027
Tekið fyrir erindi frá Hagstofu Íslands dags. 30.01.2020 og 05.02.2020 en söfnun er hafin á skýrslum sveitarfélaga um þjónustu við fólk með fötlun á árinu 2019.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að vinna skýrsluna.
8.
Umsókn um styrk til að innleiða velferðartækni
Málsnúmer 202002028
Lagt fram erindi frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 04.02.2020 en Norræna velferðarmiðstöðin hefur opnað fyrir umsóknir til að sækja um aðstoð frá sérfræðingum að innleiða velferðartækni. Þetta er í annað sinn sem miðstöðin opnar fyrir slíkar umsóknir. Velferðartæknismiðjan í Reykjavík og Öldrunarheimilin á Akureyri hafa nýtt sér þjónustu þeirra á síðasta ári. Einnig er bent á að 2. apríl n.k. verður Sambandið með vinnustofu í samvinnu við Norrænu velferðarmiðstöðina um hvernig til tókst við innleiðingu velferðartækninnar. Daginn eftir verður svo Dagur stafrænnar framþróunar sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
9.
Fjárhagsstaða sviðsins 2019
Málsnúmer 201904051
Lögð fram til kynningar frávikagreining frá fjárhagsáætlun vegna ársins 2019 frá félagsmálastjóra.
Lagt fram til kynningar