Félagsmálaráð
236. fundur
14. janúar 2020
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir
formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
varaformaður
Gunnar Eiríksson
aðalmaður
Felix Jósafatsson
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir
Sviðsstjóri félagsmálasviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201912060Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 202001046Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Framfærslukvarði félagsmálasviðs
Félagsmálastjóri lagði fram tillögu að hækku framfærslukvarða um 3.2% á milli áranna 2019-2020.
Félagsmálaráð samþykkir með 5 atkvæðum hækkunina.
5.
Fjárhagsstaða sviðsins 2019
Félagsmálastjóri fór yfir fjárhagsstöðu félagsmálasviðs fyrir árið 2019. Einhverjir reikingar eiga eftir að berast en staða sviðsins er samkvæmt áætlun 177.144.635 kr. en rauntölur eru 166.423.723 kr. Sviðið er því að skila 6% lægri rekstrartölum en áætlað var.
Lagt fram til kynningar
6.
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð), 383. mál
Lagt fram til kynningar erindi dags. 4. desember 2019 frá nefndarsviði Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð), 383. mál
Lagt fram til kynningar
7.
Leiðbeinandi tilmæli vegna afgreiðslu beiðna um nauðungarvistanir
Lagt fram til kynningar erindi dags. 13.12.2019 frá fjölskyldusviði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Erindi þetta var sent yfirlæknum geðdeilda og félagsmálastjórum en um var að ræða leiðbeinandi tilmæli sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu vegna afgreiðslu beiðna um nauðungarvistun.
Lagt fram til kynningar
8.
Breyting á reglugerð um húsnæðisbætur
Lagt fram til kynningar erindi dags. 18.12.2019 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem athygli var vakin á reglugerð um breytingu á reglugerð um húsnæðisbætur. Helstu breytingar felast í 3,5% hækkun á frítekjumarki og hækkun á eignamörkum úr 6 millj. í 8,5 millj.Einnig er gerð breyting á skerðingarhlutfalli þannig að það lækkar úr 9% í 11%
Lagt fram til kynningar
9.
Stuðningur sem sveitarfélög veita flóttafólki á sviði húsnæðismála
Lagt fram til kynningar erindi dags. 06.01.2020 frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga en þar var óskað svara um stuðning þann sem sveitarfélög á landinu veita flóttafólki á sviði húsnæðismála. Einnig var lagt fram svar Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar
10.
Stefna í málefnum aldraða
Farið var yfir drög að stefnu í málefnum aldraðra.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að leggja lokahönd á stefnuna samanber tillögur á fundinum. Lagt fram á næsta fundi ráðsins.