Fara í efni

Félagsmálaráð

234. fundur
12. nóvember 2019 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Guðfinna Ásdís Arnardóttir varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Rafnsdóttir Sviðsstjóri félagsmálasviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201911007
Trúnaðarmál nr. 201911007Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201911021
Trúnaðarmál nr. 201911021Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201911038
Trúnaðarmál 201911038Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Beiðni um aðstoð v.íþrótta barna
Málsnúmer 201911036
Trúnaðarmál - 201911036Bókað í trúnaðarmálabók
Bókað í trúnaðarmálabók
5.
Fjárhagsaðstoð
Málsnúmer 201911001
Trúnaðarmál 201911001Bókað í trúnaðarmálabók
7.
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 116. mál
Málsnúmer 201910076
Tekið fyrir erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 11.10.2019. Sent er til umsagnar tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbelidsmál, 116. mál
Lagt fram til kynningar
8.
Til umsagnar frumvarp til laga um barnaverndarlög (refsing við tálmun eða takmörkun á umgengni), 123. mál.
Málsnúmer 201910107
Tekið fyrir erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 18.10.2019. Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um barnaverndarlög (refsing við tálmun eða takmörkun á umgengni), 123. mál
Lagt fram til kynningar
9.
Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020
Málsnúmer 201910109
Tekið fyrir erindi frá Stígamótum dags. 10.10.2019. Stígamót óska eftir samstarfi um rekstur félagsins. Stígamót bjóða upp á viðtalsþjónustu og netspjall. Á sl. ári leituðu 784 einstaklingar til þeirra, þarf af 418 í fyrsta skipti og var fjöldi ráðgjafarviðtala alls 2.995Stígamót hafa í mismiklum mæli boðið upp á þjónustu við fólk utan höfuðborgarsvæðisins. Um helmingur þeirra sem nýta þjónustuna á hverju ári búa utan Reykjavíkur. Síðastliðið ár flaug ráðgjafi frá Stígamótum austur á land hálfsmánaðarlega. Einnig er veitt þjónusta á Norðanverðum vestfjörðum. Rekstur Stígamóta er algjörlega háður skilningi og stuðningi opinberra aðila. Stígamót skora á sveitarstjórnarfólk að forgangsraða í þágu velferðar íbúanna og taka þátt í starfinu með þeim.
Félagsmálaráð hafnar erindinu þar sem Stígamót veita ekki þjónustu í sveitarfélaginu.
10.
Umsókn um styrk til Bergsins headspace fyrir árið 2020
Málsnúmer 201911010
Tekin fyrir umsókn um styrk til Bergsins headspace fyrir árið 2020 dags. 08.10.2019. Sótt er um 200.000 krónur.Bergið headspace er stofnað af grasrótarsamtökum sem vildu brúa bil í þjónustu við ungmenni upp að 25 ára aldri, þar sem og margir detta á milli kerfa. Rannsóknir sýna að þessi aldurshópur sækir sér ekki hjálp fyrr en vandinn er orðinn mikill. Kerfin geta líka verið flókin og afmörkuð við tilteknar greiningar eða vanda sem gerir það að verkum að erfitt er að fá heildstæða þjónustu. Bergið headspace er í samvinnu við Headspace í Ástralíu og Danmörku.
Félagsmálaráð hafnar erindinu.
11.
Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2020
Málsnúmer 201911020
Tekið fyrir erindi frá Kvennaathvarfinu dags. 20.10.2019 þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2020 að fjárhæð 100.000. Kvennaathvarfið hefur frá stofnun verið skjól fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna ofbeldis. Einnig athvarf fyrir konur sem grunur leikur á að séu fórnarlömb mansals. Dvalarkonum stendur til boða aðstoð félagsráðgjafa og ráðgjöf lögfræðings við að taka þau skref sem nauðsynleg eru til að yfirgefa ofbeldissambandið auk þess sem konurnar nýta sé yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af starfandi ráðgjafa á hverjum degi.
Félagsmálaráð samþykkir erindi Kvennaathvarfins og veitir rekstarstyrk að upphæð 100.000 kr. Tekið af lið 02-80-9145
12.
Konukot
Málsnúmer 201911014
Tekið fyrir erindi frá Konukoti dags.28.10.2019. Konukot er úrræði Rauða krossins, rekið á þjónustusamningi við Reykjavíkurborg. Hópurinn sem leitar í athvarfið eru fjölbreyttur og samsetning hans mismunandi eftir dögum. Sumar konur koma einu sinni og aðrar mjög oft. Allar eiga þessar konur það sammerkt að þær hafa ekki á annan stað að fara, stundum vantar þær gistingu eina nótt, þær eru að koma og fara úr meðferð. Þær konur sem leita ítrekað í Konukot eiga það þó flestar sameiginlegt að eiga við margþættan og mikinn vanda að stríða, félagslegan, geðrænan og/eða fíkniefnavanda. Reykjavíkurborg hefur óskað eftir að tilnefndir verði tengiliðir við neyðarathvörfin, Gistiskýlið og Konukot. Tilgangur þess er að tengiliðir sveitarfélaganna og forstöðumenn Gistiskýlisins og Konukots komi sér upp reglubundnu samstarfi. Með bréfi þessu er vonast til tengingar á milli Konukots og annarra sveitarfélaga. Einnig kom fram í símtali við forstöðumann Konukots að komi kona í Konukot sem ekki á lögheimili í Reykjavík, verður sveitarfélagi hennar sendur reikningur fyrir dvöl hennar í úrræðinu.
Erindið lagt fram til kynningar. Félagsmálaráð fagnar slíkri samvinnu við Konukot.
Viðhengi
Konukot
13.
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar
Málsnúmer 201903089
Lagt var fram til kynningar erindi frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar dags. 22.10.2019. Bent er á að í 15.gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga er fjallað um endurgreiðslu úr ríkissjóði til sveitarfélaga fái erlendir ríkisborgarar sem ekki eiga lögheimili í landinu fjárhagsaðstoð. Sveitarfélög skulu senda Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar yfirlit yfir útlagðan kostnað eigi síðar en 1. desember nk.
Lagt fram til kynningar
14.
Umsögn sambandsins varðandi breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu
Málsnúmer 201911013
Lagt var fram til kynningar dags. 21.10.2019 umsögn sambands Íslenskra sveitarfélaga varðandi breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu.
Lagt fram til kynningar
15.
Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar
Málsnúmer 201903089
Tekið fyrir erindi dags. 18.10.2019 frá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar þar sem minnt er á að stofnunin sinni eftirliti fyrir hönd ráðherra með framkvæmd laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 sbr. 3.gr. laganna og laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 sbr. 4.gr. laganna,Að gefnu tilefni bendir Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar á mikilvægi þess að til staðar séu verklagsreglur hjá sveitarfélögum sem taka til alvarlegra atvika í þjónustu við fatlað fólk. Slíkar reglur auka ekki einungis traust á þeirri þjónustu sem verið er að veita heldur tryggja einnig að skráningar upplýsinga og gagna sé rétt og í samræmi við gildandi lög og reglur.
Lagt fram til kynningar
16.
Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.Endurskoðun
Málsnúmer 201907016
Lagt var fram uppfært erindisbréf félagsmálaráðs.
Lagt fram uppfært erindisbréf fyrir félagsmálaráð.
Félagsmálaráð samþykkir erindisbréfið með þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum.

17.
Gjaldskrár 2020
Málsnúmer 201911018
Teknar voru fyrir gjaldskrár félagsmálasviðs fyrir árið 2020.
Félagsmálaráð samþykkir gjaldskrá um heimilisþjónustu, lengda viðveru og niðurgreiðslu dagmóðurgjalda. Félagsmálaráð felur starfsmönnum að útfæra gjaldskrá um aksturþjónustu frekar.
18.
Fjárhagsstaða sviðsins 2019
Málsnúmer 201904051
Tekin var fyrir fjárhagsstaða félagsmálasvið miðað við fjárhagsáætlun ársins 2019
Lagt fram til kynningar. Félagsmálaráð lýsir ánægju sinni með fjárhagsstöðu sviðsins fyrir árið 2019