Fara í efni

Félagsmálaráð

232. fundur
10. september 2019 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Felix Jósafatsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Karlsdóttir og Eyrún Rafnsdóttir Þroskaþjálfi og Félagsmálastjóri
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201908024
Trúnaðarmál- 201908024Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201909053
Trúnaðarmál - 20190953Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201909052
Trúnaðarmál - 201909052Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Fjárhagsstaða sviðsins 2019
Málsnúmer 201904051
Lagt var fram til kynningar stöðumat á fjárhagsstöðu félagsmálasviðs fyrir tímabilið janúar-júlí 2019.
Lagt fram til kynningar
5.
Fjárhagsáætlun 2020
Málsnúmer 201908017
Lagt var fram til kynningar tímarammi fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.
Lagt fram til kynningar
6.
Breyting á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga vegna persónuverndar og fl.
Málsnúmer 201908018
Tekið fyrir erindi sent í rafpósti dags. 21.júní 2019 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem samþykkt voru á Alþingi lög um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr.90/2018 á málefnasviði félags- og barnamálaráðherra. Bent er sérstaklega á að þar á meðal voru samþykktar breytingar á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lögum um Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins, nr.83/2003.
Lagt fram til kynningar
7.
Fjölmenning og erlendir íbúar
Málsnúmer 201907014
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 20 júní 2019 frá Klaudiu Beatu Wróbel fjölmenningarfulltrúa í Vestmannaeyjum þar sem hún áformar að boða til fundar vegna málefna erlendra íbúa í sveitarfélögum landsins.
Lagt fram til kynningar
8.
Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.Endurskoðun
Málsnúmer 201907016
Tekið fyrir erindisbréf félagsmálasviðs.
Félagsmálaráð fór yfir og gerði athugasemdir við erindisbréfið og felur sviðsstjóra að gera viðeigandi breytingar.
9.
Skilyrði um lágmarkslengd búsetu í sveitarfélagi til að öðlast rétt til félagsþjónustu
Málsnúmer 201908016
Lagt fram til kynningar rafpóstur frá Rannveigu Einarsdóttur sviðstjóra fjölskylduþjónustu Hafnafjarðar dags. 20.maí 2019 þar sem hún sendir til upplýsinga bréf frá Félagsmálaráðuneytinu dagsett 9.maí 2019 þar sem erindið er skilyrði um lágmarkslengd búsetu í sveitarfélagi til að öðlast rétt til félagsþjónustu.
Lagt fram til kynningar
10.
Kjarasamningshækkanir á almennum markaði - krafa um hækkun á framlagi til NPA samninga
Málsnúmer 201906120
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 25.júní 2019 frá NPA miðstöðinni, sem sér um umsýslu NPA samninga. Þar kemur fram krafa um hækkun á framlagi NPA samninga vegna hækkunar á launatöxtum vegna nýs kjarasamnings og kröfu um hækkun á framlagi sveitarfélaga til NPA samninga til samræmis við kjarasamningshækkunina.
Lagt fram til kynningar.
11.
Ársreikningur NPA miðstöðvarinnar ásamt skýrslu stjórnar fyrir árið 2018
Málsnúmer 201908019
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 5.júlí 2019 frá NPA miðstöðinni, sem er í samstarfi við Dalvíkurbyggð vegna umsýslu NPA samninga, um ársreikninga og skýrslu stjórnar fyrir árið 2018.
Lagt fram til kynningar.
12.
Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög vegna setningar reglna um NPA
Málsnúmer 201909032
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 31.júlí 2019 frá Tryggva Þórhallssyni, Maríu Ingibjörgu Kristjánsdóttur og Guðjóni Bragasyni lögfræðingum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar kemur fram að Sambandið hefur unnið að því í samstarfi við félagmálaráðuneytið og viðhöfðu samráði við samtök fatlaðs fólks að taka saman leiðbeiningar um þá innleiðingu sem nú stendur yfir á notendastýrði persónulegri aðstoð við fatlað fólk (NPA).
Lagt fram til kynningar.
13.
Velferðartæknidagur
Málsnúmer 201909033
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 16. ágúst 2019 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi velferðartæknidag. Norræna velferðarmiðstöðin verður með vinnustofu í Velferðartækni með áherslu á fjarþjónustu þann 20. september nk á Grand Hótel frá 9-15. Sérfræðingar frá Svíþjóð og Noregi munu kynna verkefni sem þau hafa innleitt með sérstakri áherslu á að koma á fjarþjónustu í dreifbýlum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
14.
Óskað eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar
Málsnúmer 201909034
Tekinn fyrir rafpóstur dags. 2. september 2019 frá Jafnréttisráði þar sem ráðið óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2019.
Lagt fram til kynningar.
15.
Tekjur frá jöfnunarsjóði 2019
Málsnúmer 201909035
Lagt var fram til kynningar skjal yfir tekjur frá Jöfnunarsjóði vegna málefna fatlaðra fyrir árið 2019.
Lagt fram til kynningar.
16.
Þjónustuíbúðir í Lokastíg
Málsnúmer 201909036
Lagðar fram til kynningar og umræðu nýjustu teikningar af þjónustuíbúðunum í Lokastíg 3-17.
Lagt fram til kynningar.