Félagsmálaráð
220. fundur
28. ágúst 2018
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Lilja Guðnadóttir
formaður
Eva Björg Guðmundsdóttir
varaformaður
Gunnar Eiríksson
aðalmaður
Felix Jósafatsson
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Þórhalla Karlsdóttir
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201808067
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201808073
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 20180874
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Félagsmálstjóri fór yfir 6 mánaða stöðumat á fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2018.
Lagt fram til kynningar.
5.
Jafnlaunavottun
Erindi barst frá Hagstofunni þann 20.júní sl. varðandi launarannsókn Hagstofunnar um jafnlaunavottun. Í áliti allsherjar- og menntamálanefndar dags. 30.maí 2017 var lögð áhersla á að þar sem verið væri að lögfesta skyldu fyrirtækja og stofnana til að nota jafnlaunastaðalinn er búið að tryggja sérstakan lesaðgang að staðlinum ÍST 85 Jafnlaunakerfi - kröfur og leiðbeiningar, notendum að kostnaðarlausu. Fjármála og stjórnsýslustjóri, launafulltrúi og félagsmálastjóri hafa nú þegar hafið vinnu við að uppfylla kröfur um jafnlaunavottun.
Lagt fram til kynningar.
6.
Forvarnarstefna og aðgerðaráætlun
Farið var yfir forvarnarstefnu Dalvíkurbyggðar sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins og aðgerðaráætlun forvarnarstefnu sveitarfélagsins.
Félagsmálaráð felur starfsmönnum að boða til fundar félögin sem tilgreind eru í forvarnarstefnunni.
7.
Tímarammi fyrir fjárhagsáætlunargerð
Starfsmenn félagsmálasviðs lögðu fram og kynntu tímaramma fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019. Í lok ágúst mun Byggðarráð leggja fram drög að fjárhagsrömmum fyrir hvert svið. Stjórnendur skila fjárhagsáætlun og starfsáætlun til fjármála- og stjórnsýslustjóra um miðjan september 2018. Fyrri umræða verður í sveitarstjórn í lok október og síðar umræða fer fram um miðjan nóvember 2018. Einnig var farið yfir samantekt um fjárhagsáætlunarferlið sem samþykkt var í sveitarstjórn 21.03.2017. Þar er farið yfir markmiðum með rammafjárhagsáætlun sem unnið er eftir, lýsing er á vinnuferli fjárhagsáætlunagerðar, hlutverkum ráðanna, starfsmanna og sveitarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Starfsáætlun 2018
Starfsmenn félagsmálasviðs lögðu fram starfsáætlun fyrir árið 2018 með ósk um ábendingar félagsmálaráðs fyrir starfsáætlunargerð ársins 2019.
Lagt fram til kynningar.
9.
Gjaldskrár 2018
Teknar voru fyrir gjaldskrár félagsmálasvið Dalvíkurbyggðar eins og þær eru fyrir árið 2018. Samkvæmt fyrri ákvörðunum hefur verið samþykkt að hækka gjaldskrár samkvæmt vísitölu hækkunum.
Lagt fram til kynningar.