Félagsmálaráð
213. fundur
12. desember 2017
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir
formaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir
Aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir
aðalmaður
Jóhannes Tryggvi Jónsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir
Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir
Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201712068
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201712069
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Trúnaðarmál
Eyrún Rafnsdóttir vék af fundi kl 9:13 vegna vanhæfis Trúnaðarmál - 201711034Eyrún Rafnsdóttir kom inn á fund 9:35
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
5.
Styrkbeiðni vegna rekstur Aflsins 2018
Erindi barst frá Aflinu - Samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis dags. 20. nóvember 2017 þar sem óskað er eftir rekstarstyrk. Óskað er eftir styrk svo hægt sé að halda áfram að þróa Aflið og styðja á sem faglegastan hátt við brotaþola ofbeldis í heimabyggð. Það er samfélagsleg ábyrgð okkar allra að stuðla að bættri þjónustu við brotaþola og aðstandendur þeirra. Öll framlög eru vel þegin.
Félagsmálaráð samþykkir að styrkja Aflið um 100.000,- krónur tekið af lið 02-80.
6.
Jólaaðstoð 2017
Erindi barst dags. 17. nóvember frá Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum á Akureyri og Rauða krossinum við Eyjafjörð þar sem óskað er eftir styrk til að veita einstaklingum í Eyjafirði jólaaðstoð sem þess þurfa. Ofangreind félög hafa starfað saman undanfarin ár og hafa félögin skrifað undir samstarfssamnig til ársins 2018. Söfnunarfé er notað til kaupa á gjafakortum til einstaklinga fyrir jólin. Samtals fengu 320 fjölskyldur og einstaklingar aðstoð fyrir jólin í fyrra. Samstarf hefur verið undanfarin ár milli fyrrgreindra félaga og félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar.
Félagsmálaráð samþykkir að styrkja jólaaðstoðina um 100.000,-. Tekið af lið 02-11-9110.
7.
Styrkbeiðni Saman 2018
Jóhannes Tryggvi Jónsson vék af fundi kl. 9:55 Erindi barst dags. 20.11 2017 frá Samanhópnum um fjárstuðning við forvarnarstarf SAMAN-hópsins á árinu 2017. Markmið með starfi hópsins er að styðja og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu, einkum í tengslum við tímabil og viðburði þar sem hætta er á aukinni neyslu vínuefna meðal unglinga. Stuðningur og hvatning SAMAN-hópsins felst í að vekja athygli á hættum sem ógna börnum og unglingum, benda foreldrum á ábyrgð þeirra á uppeldi barna sinna og að hvetja til jákvæðra samskipta fjölskyldunnar á sérstökum tímamótum. Hópurinn fjármagnar verkefni sín eingöngu með styrkjum. SAMAN-hópurinn vonar að sveitarfélagið sjái sér fært að styrkja forvarnarstarf hópsins um 20.000-60.000 en öll framlög eru vel þegin.
Félagsmálaráð hafnar erindinu með þremur greiddum atkvæðum.