Fara í efni

Félagsmálaráð

212. fundur
14. nóvember 2017 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir formaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Jóhannes Tryggvi Jónsson aðalmaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201711003
Trúnaðarmál - 201711003
Bókað í trúnaðarmálabók

2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201710110
Trúnaðarmál 201710110
Bókað í trúnaðarmálabók

3.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201710075
Trúnaðarmál - 201710075
Bókað í trúnaðarmálabók
4.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201711033
Jóhannes Tryggvi Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl 8:22Trúnaðarmál 201711033Jóhannes Tryggvi Jónsson kom aftur inná fund kl 8:40
Bókað í trúnaðarmálabók

5.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201711034
Eyrún Rafnsdóttir vék af fundi kl 9:15 vegna vanhæfis.Trúnaðarmál 201711034Eyrún Rafnsdóttir kom inná fund kl 9:40.
Bókað í trúnaðarmálabók

6.
Jólaaðstoð 2017
Málsnúmer 201711032
Farið var yfir viðmið er félagsmálaráð setti sér fyrir síðustu jól um jólaaðstoð til einstaklinga sem hafa verið með fastan framfærslustyrk frá Dalvíkurbyggð.
Félagsmálaráð samþykkir viðmiðin og leggur til að bætt verði við fastri upphæð fyrir hvert barn yngra en 18 ára.
7.
Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2018
Málsnúmer 201711014
Tekið fyrir erindi frá Kvennaathvarfinu sem barst í október 2017. Óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir Kvennaathvarið að upphæð 400.000,- Fram kemur í erindi Kvennaathvarfsins að á undanförnum árum hafi aðsókn að dvöl í Kvennaathvarfinu aukist mjög mikið og er nú svo komið að mikil þrengsli eru jafnan í húsinu og mikil þörf orðin á að kaupa eða byggja nýtt hús fyrir starfsemina. Ákveðið hefur verið að láta það hafa forgang að byggja litlar íbúðir, áfangaheimili fyrir dvalarkonur. Átakið á allra vörum gekk vel og söfnuðust nærri 80 milljónir í þetta verkefni. Vegna aukinnar aðsóknar í athvarfinu hefur þurft að fjölga starfsfólki og reynt hefur verið að auka fjölbreytni í þjónustu. Markmið Kvennaathvarfsins er að veita skjól fyrir konur og börn þeirra, bjóða upp á stuðningsviðtöl og ráðinn hefur verið lögfræðingur til aðstoðar við konurnar til að ráða sínum málum.
Félagsmálaráð hafnar erindinu samhljóða.
8.
Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2018
Málsnúmer 201710071
Tekið var fyrir erindi frá Stígamótum dags. 15.10 2017 þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk til félagsins.
Félagsmálaráð hafnar erindinu með öllum greiddum atkvæðum. Með þeim rökum að Stígamót veitir ekki þjónustu í Dalvíkurbyggð.
9.
Forvarnir
Málsnúmer 201604057
Farið var yfir tillögur frá vinnuhópi sem í sitja fulltrúi félagsþjónustu, fræðslusviðs, heilsugæslu og grunnskólans á Dalvík um forvarnarfræðslu fyrir síðustu mánuði ársins 2017 og ársins 2018. Lagt er til að fá fræðslu fyrir unglinga og foreldra þeirra; um rafsígarettur, mikilvægi þess að setja börnum mörk, sjálfsstyrkingu fyrir stelpur og stráka, sjálfsvirðingu. Félagsmálastjóri ætlaði að vera í samvinnu við leikskólana um forvarnarfræðslu í leikskólum og búið er að óska eftir fundi með stjórn félags eldri borgara um forvarnir í þeirra hópi. Einnig var farið yfir forvarnaráætlun Dalvíkurbyggðar og rætt um fund með samstarfsaðilum.
Félagsmálaráð samþykkir hugmyndir vinnuhópsins um forvarnir fyrir árið 2017-2018 og fagnar þessari samvinnu sviðanna. Félagsmálaráð leggur til að formönnum félaga í Dalvíkurbyggð verði sent bréf í stað þess að boða til fundar þar sem minnt er á mikilvægi forvarna hjá félögunum og að félögin geti sent inn hugmyndir af forvarnarverkefnum fyrir íbúa sveitarfélagsins sem og senda félagsmálaráði upplýsingar um þau forvarnarverkefni sem unnið hefur verið að innan hvers félags.
10.
Ferðaþjónusta fatlaðra
Málsnúmer 201304055
Farið yfir reglur um ferðaþjónustu fatlaðra.
Frestað til næsta fundar.