Fara í efni

Félagsmálaráð

211. fundur
10. október 2017 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Silja Pálsdóttir formaður
Hildur Birna Jónsdóttir Varaformaður
Elísa Rán Ingvarsdóttir Aðalmaður
Rúna Kristín Sigurðardóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Rafnsdóttir Sviðstjóri
Þórhalla Karlsdóttir Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þroskaþjálfi
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201710005
Trúnaðarmál - 201710005
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 201504082
Trúnaðarmál - 201504082
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
Ferðaþjónusta fatlaðra
Málsnúmer 201304055
Lögð voru fram drög að nýjum reglum um ferðaþjónustu fatlaðra sem eru unnar í samvinnu við félagsþjónustu Fjallabyggðar.
Lagt fram til kynningar og starfsmönnum falið að vinna áfram reglurnar miðað við umræður á fundinum. Tekið fyrir á næsta fundi.
4.
Húsnæðisþing 2017
Málsnúmer 201709113
Lagðar voru fram upplýsingar sem bárust með rafpósti þann 15.september 2017 um Húsnæðisþing. Íbúðalánasjóður heldur fyrsta árlega húsnæðisþingið hér á landi þann 8.nóbember 2017 og hvetur sveitarfélög til þess að taka daginn frá. Húsnæðisþingið er vettvangur þar sem lagður er grunnur að húsnæðistefnu stjórnvalda og farið verður yfir stöðu húsnæðismála byggt á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar
5.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Málsnúmer 201701014
Rætt var um sérstakan húsnæðisstuðning í Dalvíkurbyggð, fjölda umsókna til sveitarfélagsins og endurskoðun á reglum Dalvíkurbyggðar. Ábending barst frá Velferðarráðuneytinu um að sveitarfélög endurskoði reglur sínar.
Félagsmálaráð telur ekki þörf á frekari endurskoðun að svo stöddu en málið verður tekið fyrir að nýju eftir áramót.
6.
Leiðbeinandi reglur um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis
Málsnúmer 201710024
Erindi barst frá Velferðarráðuneytinu dags. 25.09 2017 þar sem lögð voru fram drög að leiðbeinandi reglum um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis.Á grundvelli 5. gr. samkomulags um endurskoðaða verka- og kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga vegna breytinga á fyrirkomulagi húsnæðisstuðnings við leigjendur, hefur samráðsnefnd um húsnæðismál unnið meðfylgjandi drög að leiðbeinandi reglum um úthlutun félagslegs íbúðarhúsnæðis sveitarfélaga. Sveitarfélögum gefst kostur á að gera athugasemdir við drögin.
Lagt fram til kynningar. Starfsmönnum er falið að skoða drögin að reglum um úthlutun félagslegra íbúða og gera tillögur í framhaldi af reglum fyrir Dalvíkurbyggð.
7.
Kynning á starfsemi Aflsins - Samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi
Málsnúmer 201709171
Lagt fram rafbréf dagsett 28.september 2017 frá Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldis varðandi kynningu á starfi samtakanna fyrir sveitarfélög á Norðurlandi.
Lagt fram til kynningar. Starfsmenn sviðsins verða á kynningu frá Aflinu með félagsþjónustu Fjallabyggðar 19. október nk.